Daði segir að helsta áskorun Visku sé að benda á staðreyndir og kynna íslenskum fjárfestum að rafmyntir séu áhugaverður eignaflokkur.
Daði segir að helsta áskorun Visku sé að benda á staðreyndir og kynna íslenskum fjárfestum að rafmyntir séu áhugaverður eignaflokkur. — Morgunblaðið/Hákon
Viska er 3 ára í janúar og óhætt er að segja að mikið hafi gerst síðan þá. Daði segist stoltur af að hafa skilað jákvæðri ávöxtun til sjóðfélaga öll árin og nú sé Viska með yfir 70 sjóðfélaga. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi…

Viska er 3 ára í janúar og óhætt er að segja að mikið hafi gerst síðan þá. Daði segist stoltur af að hafa skilað jákvæðri ávöxtun til sjóðfélaga öll árin og nú sé Viska með yfir 70 sjóðfélaga.

Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin?

Frá stofnun Visku hefur ein af okkar helstu áskorunum verið að rafmyntageirinn virðist afskaplega misskilinn og viðhorf fólks til hans oft á tíðum neikvætt. Okkar hlutverk í Visku er að halda uppi staðreyndum og kynna íslenskum fjárfestum þennan áhugaverða eignaflokk. Það er ótrúlega gaman að hitta fólk og kynna því nýjan heim en það er líka ansi tímafrekt.

Önnur áskorun er að hjá okkur er aldrei lokað. Rafmyntir ganga kaupum og sölum allan sólarhringinn alla daga ársins sem þýðir að það er í raun aldrei frí hjá okkur.

Hvað gerirðu til að fá orku
og innblástur í starfi?

Ég hlusta mjög mikið á hlaðvarpsþætti um rafmyntageirann enda þarf maður að hafa sig allan við til að fylgjast með þeim hröðu breytingum sem eiga sér stað í geiranum. En svo er eitt af því sem veitir mér hvað mesta ánægju að hitta fólk og útskýra fyrir því rafmyntaheiminn.

Hver var síðasti fyrirlesturinn eða ráðstefnan sem þú sóttir?

Ég sótti margar ráðstefnur erlendis á síðasta ári. Í september fór ég í tveggja vikna vinnuferð sem byrjaði í Singapúr sem var mikil upplifun. Þar fór ég meðal annars á Solana Breakpoint-ráðstefnuna sem veitti mér mikinn innblástur.

Eftir viku í Singapúr flaug ég til Barcelona á aðra ráðstefnu sem kallast European Blockchain Conference en þar stýrði ég pallborðsumræðum um efnahagsmál og rafmyntir.

Hver eru helstu
verkefnin fram undan?

Helstu verkefnin eru að halda áfram að byggja upp Visku í samvinnu með mínum öflugu meðstofnendum. Viska er ennþá ungt fyrirtæki en okkur hefur tekist að byggja góðan grunn sem nú þarf að byggja enn betur ofan á. Við sjáum mikil tækifæri fram undan sem við ætlum að grípa.

Hvaða bók (eða hugsuður) hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar?

Bókin Can‘t Hurt Me eftir David Goggins er frábær. Í bókinni fer hann yfir öll þau áföll sem hann hefur lent og í hvernig hann sigrast á þeim og sjálfum sér með alveg ótrúlegum viljastyrk. Fólk áttar sig oft ekki á hversu mikið býr í því.

Hvernig heldurðu
þekkingu þinni við?

Konan mín getur vottað það að ég hugsa stanslaust um vinnuna. Ég er alltaf að lesa mér til um það sem er að gerast í rafmyntageiranum og almennt í efnahagsumhverfinu. Þessar upplýsingar má finna að mestu leyti í áhugaverðum fréttabréfum og með því að fylgja aðilum á X sem eru duglegir að fjalla um það helsta sem er að gerast. Ég hlusta svo óhóflega mikið á hlaðvörp um þessi mál.

Hugsarðu vel um heilsuna?

Já, ég legg mikla áherslu á heilsu. Ég hleyp og lyfti lóðum nokkrum sinnum í viku og svo fer ég í pottana og gufuna í Garðabæjarlaug eins oft ég get enda er það ein besta slökun sem ég veit um.

Ég hef lesið mér mikið til um næringu síðustu ár og mín skoðun er að mikilvægt sé að reyna halda blóðsykri nokkuð stöðugum. Orkustig yfir daginn verður þannig mun stöðugra. Ég hef gert prófanir á mér með sílesandi blóðsykurmælum og stóra myndin er sú að ég borða mun minna af kolvetnum í dag en ég gerði áður og legg áherslu á að borða hreina óunna fæðu eins og kostur er, t.d. kjöt, fisk, egg og grænmeti.

Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýtt starf?

Mér hefur fundist ég vera í draumastarfinu frá því ég byrjaði á fjármálamarkaði árið 2007. Ef ég þyrfti að velja annað myndi það tengjast kennslu eða ráðgjöf þar sem ég hef mikla ánægju af því að miðla þekkingu minni og vera í samskiptum við fólk.

Hvað myndir þú læra
ef þú fengir að bæta
við þig nýrri gráðu?

Ég myndi leggja áherslu á gervigreind, líklega í einhverskonar tölvunarfræði. Ástæðan er að heimurinn er að breytast hratt vegna mikillar framþróunar í gervigreind.

Hvaða kosti og galla sérðu
við rekstrarumhverfið?

Kostirnir eru að Ísland er lítið og sveigjanlegt samfélag, sem gerir það auðvelt að byggja upp góð tengsl. Það er hins vegar líka galli að Ísland sé lítið enda markaðurinn fremur smár og vaxtartækifæri takmörkuð.

Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráður í einn dag?

Rekstur hins opinbera hefur blásið út síðustu árin. Þetta er þróun sem þarf að snúa við. Það gengur ekki að hið opinbera sé í hallarekstri ár eftir ár og svo virðist aldrei vera hægt að skera niður.

Það mætti breyta lögum svo hægt sé að segja upp opinberum starfsmönnum ef þeir standa sig ekki í vinnunni eins og gildir á almennum vinnumarkaði.

Hin hliðin

Menntun: Háskóli Íslands, B.Sc. í verkfræði 2008 og M.Sc. í fjármálahagfræði 2013.

Starfsferill: Icebank, gjaldeyris- og afleiðumiðlun, 2007-2009, H.F. Verðbréf, fyrst starfsmaður í markaðsviðskiptum, síðar forstöðumaður markaðsviðskipta og loks framkvæmdastjóri, 2010-2016, Arctica Finance, markaðsviðskipti og einn eigenda, 2016-2018, Fossar, markaðsviðskipti og einn eigenda, 2018-2022, Viska, framkvæmdastjóri og einn eigenda, 2022- nú.

Áhugamál: Ég er svo heppinn að fá að starfa við áhugamál mín, fjármálamarkaði og rafmyntageirann. En fyrir utan vinnu þá hef ég mjög gaman af því að spila golf, þá sérstaklega fara erlendis í golfferðir.

Fjölskylduhagir: Giftur Lindu Björk Lárusdóttur kennara í Verzlunarskóla Íslands og eigum þrjú börn, Kristján Kára 13 ára, Lárus Darra 7 ára og Sunnevu 5 ára.