Alls féllu 24 snjóflóð á Austfjörðum og Suðausturlandi dagana 12. til 20. janúar. Flest þeirra féllu við Neskaupstað, eða ellefu flóð alls frá 18. til 20. janúar. Þrjú féllu utar í Norðfirði og þrjú á Reyðarfirði 19

Sonja Sif Þórólfsdóttir

sonja@mbl.is

Alls féllu 24 snjóflóð á Austfjörðum og Suðausturlandi dagana 12. til 20. janúar. Flest þeirra féllu við Neskaupstað, eða ellefu flóð alls frá 18. til 20. janúar. Þrjú féllu utar í Norðfirði og þrjú á Reyðarfirði 19. til 20. janúar.

Rýmingu aflétt

Gripið var til rýminga og hættustigi lýst yfir í Neskaupstað og á Seyðisfirði á sunnudag vegna snjóflóðahættu en íbúar á þeim svæðum sem rýmd voru eru í heild um 170 og fengu allir húsaskjól.

Rýmingu var aflétt í Neskaupstað á hádegi í gær og klukkan 14 var rýmingu aflétt á Seyðisfirði.

Ógnuðu ekki byggð

Snjóþungt er á svæðinu en mikill úrkomubakki kom yfir landið á sunnudag og svo annar eftir hádegi á mánudag. Ofanflóðasérfræðingur á snjóflóða- og skriðuvakt Veðurstofu Íslands, Óliver Hilmarsson, sagði í samtali við mbl.is í gær að flóðin sem féllu við Neskaupstað hefðu farið vel út úr giljunum en þau hefðu ekki ógnað byggð.

Af stærðinni 2,5-3

Í tilkynningu frá ofanflóðavakt Veðurstofunnar segir að alltaf þyki gott þegar upptakasvæði snjóflóða losi sig við snjó svo hann byggist ekki upp í stærri snjóflóð síðar meir. Snjóflóðin sem féllu á Austfjörðum síðustu daga eru flest skilgreind af stærðinni 2,5 til 3. Er massi snjóflóðs af stærðinni 3 skilgreindur sem 1.000 tonn og er lýst þannig að flóðið geti grafið og eyðilagt fólksbíl, grafið vörubíl, skemmt hús eða eyðilagt minni byggingar. Snjóflóð af stærðinni 2 eru snjóflóð sem eru 100 tonn og geta grafið mann.