Noregur
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
„Það er hrikalega góð tilfinning að vera kominn hingað. Það hefur verið tekið vel á móti mér. Það eru góðir leikmenn í liðinu og gott umhverfi til þess að geta orðið betri leikmaður,“ sagði knattspyrnumaðurinn Ólafur Guðmundsson í samtali við Morgunblaðið.
Ólafur samdi við norska félagið Aalesund í byrjun ársins og skrifaði undir þriggja ára samning, út tímabilið 2027. Aalesund, sem leikur í B-deildinni í Noregi, keypti hann af FH þar sem Ólafur hafði leikið frá því um mitt sumar 2021.
Hann er 22 ára gamall miðvörður sem þrátt fyrir ungan aldur lék 80 leiki fyrir FH í efstu deild og skoraði sjö mörk. Ólafur ólst upp hjá Breiðabliki en lék aldrei deildar- eða bikarleik fyrir liðið. Hann á þá nokkra leiki fyrir Grindavík og Keflavík í 1. deild og Augnablik í 3. deild. Ólafur, sem á 13 leiki að baki fyrir U21-árs landsliðið, taldi tímabært að taka skrefið í atvinnumennsku.
„Þetta er mjög góður tímapunktur. Mér hafði fundist ég tilbúinn til þess að taka skrefið í smá tíma. Svo þegar tækifærið gafst ákvað ég að stökkva á það.“
Með betri aðstæðum
Aalesund féll úr norsku úrvalsdeildinni árið 2023 og stefndi rakleitt upp aftur á síðasta ári. Það gekk ekki eftir þar sem liðið hafnaði í níunda sæti af 16 liðum í B-deildinni og var í botnbaráttu framan af tímabilinu.
Hvað var það sem heillaði þig við Aalesund?
„Það sem heillaði mig við þetta félag er að þeir byrjuðu síðasta tímabil auðvitað mjög illa og svo kom nýtt þjálfarateymi sem er reynslumikið og gott. Eftir það fór þeim að ganga betur þannig að ég sé mikil tækifæri í liðinu og tækifæri til þess að komast upp í efstu deild,“ sagði hann.
Ólafur er mjög ánægður með aðstæðurnar hjá félaginu og segir þær töluvert stökk frá því sem hann þekkir á Íslandi.
„Það eru toppaðstæður, 10.000 manna völlur og innanhúshöll sem við æfum í á veturna. Svo æfum við úti á keppnisvellinum þegar fer að hlýna. Aðstæður eru eins góðar og þær verða á Norðurlöndunum held ég,“ sagði Ólafur.
Stökk á tækifærið
Hann sagði fleiri félög hafa sýnt sér áhuga en Aalesund hafi verið eina félagið sem lagði fram formlegt kauptilboð.
„Það eru alltaf einhverjar svona þreifingar en Aalesund var eina félagið sem kom með ákveðið tilboð og sýndi mér mikinn áhuga. Mér leist mjög vel á þá þannig að ég stökk bara strax á þetta tækifæri.“
Ólafur er örvfættur miðvörður en getur einnig leyst stöðu vinstri bakvarðar.
„Ég er fyrst og fremst fenginn hingað sem miðvörður en svo ef liðið er í vandræðum og vantar einhvern til að spila vinstri bakvörðinn þá er ég alltaf klár í að leysa það.“
Á heima í efstu deild
Eftir vonbrigði síðasta tímabils lék blaðamanni forvitni á að vita hvort búið væri að ræða markmið komandi tímabils við Ólaf.
„Ég held að það sé klárlega að koma liðinu upp í efstu deild þar sem það á heima. Þetta er lið sem á að vera í efstu deild. Ég held að allir, leikmenn, þjálfarar og fólkið í kringum félagið, séu sammála um að þetta lið eigi að fara upp í efstu deild á komandi tímabili,“ útskýrði hann.
Er Aalesund með nægilega gott lið til þess miðað við það sem þú hefur séð?
„Já, þetta er sterkur hópur og reynt og gott þjálfarateymi. Ég held að það sé allt til alls til þess að koma liðinu upp,“ sagði Ólafur, en þjálfari liðsins er reynsluboltinn Kjetil Rekdal sem lék 83 landsleiki fyrir Noreg.
Fyrir hjá Aalesund hittir hann jafnaldra sinn og fyrrverandi liðsfélaga hjá FH og U21-árs landsliðinu, Keflvíkinginn Davíð Snæ Jóhannsson.
„Ég er að komast vel inn í þetta. Það hefur fengið vel á æfingum og strákarnir taka vel í mann. Svo er auðvitað gott að hafa Davíð, sérstaklega fyrir utan æfingar.
Við borðum oft saman og erum talsvert saman utan æfinga. Það er gott að vera með hann hérna hjá sér til þess að hjálpa manni að komast inn í þessa hluti,“ sagði Ólafur að lokum í samtali við Morgunblaðið.