„Þetta er bara ein gerð svikatilrauna sem við sjáum á Íslandi þar sem verið er að „spoof-a“ íslensk símanúmer þannig að móttakandi símtals telur sig vera að fá hringingu úr íslensku númeri,“ segir Hákon Lennart Akerlund,…

Atli Steinn Guðmundsson

atlisteinn@mbl.is

„Þetta er bara ein gerð svikatilrauna sem við sjáum á Íslandi þar sem verið er að „spoof-a“ íslensk símanúmer þannig að móttakandi símtals telur sig vera að fá hringingu úr íslensku númeri,“ segir Hákon Lennart Akerlund, öryggisstjóri Arion banka, í samtali við Morgunblaðið í tilefni tveggja símtala sem starfsmanni Morgunblaðsins bárust.

Virtist sem þar væri hringt úr skiptiborðsnúmeri bankans og maður gerði grein fyrir því á mjög bjagaðri ensku að hann væri starfsmaður bankans. Hvorugt símtalið varð mikið lengra þar sem enskukunnátta hringjandans var svo bágborin að hann kom erindinu ekki frá sér áður en svarandinn hreinlega lagði á.

„Eins og fólk tekur eftir eru það erlendir aðilar sem ávarpa það og það er mjög óheppilegt að nú sé símanúmer úr seríu Arion banka komið þarna inn en mjög lítið sem við getum í raun gert. Íslensk fjármálafyrirtæki hafa óskað eftir breytingum hjá Póst- og fjarskiptastofnun og fundir hafa verið haldnir, en hins vegar hefur ekkert verið gert í þessum málum enn þá,“ heldur öryggisstjórinn áfram.

Í nóvember greindi mbl.is frá því að Finnum hefði tekist að stöðva símasvindlið sem kallað er „spoofing“, það er þegar ákveðið númer er notað sem ábreiða svo símtal virðist koma úr því, en kemur í raun frá fólki sem gengur misgott til.

„Við notuðum einmitt fréttina ykkar sem rökstuðning og sögðum að ef Finnar gætu stöðvað þetta þá gætum við það líka, en við því var ekki brugðist. Í þeim dæmum sem við höfum séð er til dæmis verið að segja fólki að það eigi mikla fjármuni í bitcoin og til standi að loka reikningnum. Það þurfi því að stofna nýjan reikning og viðmælandinn býður fram aðstoð,“ segir öryggisstjórinn.

Felist sú aðstoð í því að sá sem svarar símtalinu er látinn sækja forrit í síma sínum sem gerir bölmennunum kleift að koma yfirtökubúnaði fyrir í síma móttakandans. „Það er gert til að komast yfir aðgangsupplýsingar svo sem rafræn skilríki til að ná fjármunum af fólki,“ segir Hákon og bætir því við að þessi tegund svika sé mjög óheppileg.