Knattspyrnumaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson gæti verið á förum frá hollenska stórliðinu Ajax en hann hefur fengið takmörkuð tækifæri í vetur eftir að hafa verið fastamaður í fyrravetur. Vefmiðillinn AjaxShowtime segir að Fortuna Düsseldorf í Þýskalandi og hollensku liðin Groningen og Sparta séu mjög áhugasöm um að fá hann í sínar raðir.
Tyrkjanum Nuri Sahin var í gær sagt upp störfum sem knattspyrnustjóra þýska félagsins Borussia Dortmund eftir slæmt gengi liðsins síðustu vikur. Aðstoðarmaðurinn Mike Tullberg stýrir liðinu til að byrja með. Sahin, sem áður lék samtals í ellefu ár með aðalliði Dortmund og hefur verið meira og minna hjá félaginu frá 13 ára aldri, var ráðinn síðasta sumar og var því aðeins hálft ár í starfi.
Strákarnir í U20 ára landsliði Íslands í íshokkíi töpuðu 5:4 fyrir Ástralíu í 2. deild B á heimsmeistaramótinu í Belgrad í gær, eftir að hafa verið yfir, 4:1, þegar fjórtán mínútur voru til leiksloka. Haukur Steinsen, Haukur Karvelsson, Ólafur Björgvinsson og Helgi Bjarnason skoruðu mörk Íslands. Ísland er með þrjú stig eftir þrjá leiki og á eftir að mæta Belgíu og Ísrael.