Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
„Við erum búin að vera með þetta mál í fanginu frá því að foreldrar komu fyrst að máli við okkur og við vorum meðvituð um að þarna væri ákveðinn vandi. Það kom inn nýr leikskólastjóri við erfiðar aðstæður og hún fær stuðning. Það var ekki auðvelt fyrir hana að taka við,“ segir Árelía Eydís Guðmundsdóttir, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, í samtali við Morgunblaðið.
Leitað var viðbragða hennar vegna þess ástands sem skapast hefur á leikskólanum Maríuborg, en foreldrar 60 barna í skólanum hafa krafist þess að leikskólastjóranum verði vikið frá störfum. Á hann eru bornar ýmsar sakir, bæði af hálfu foreldra sem og nokkurra starfsmanna leikskólans, eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær.
Segir Árelía Eydís að fagstjóri í hverfismiðstöðinni, Austurmiðstöð Reykjavíkur sem leikskólinn heyrir undir, hafi verið leikskólastjóranum til halds og trausts. Hún fari sjálf ekki inn í mál sem upp komi, heldur sjái til þess að embættismenn sinni þeim fyrir hönd borgarinnar. Hins vegar hafi verið fundað reglulega með foreldrum sem óskað hafi nafnleyndar.
Erfið staða
„Við gerum okkur grein fyrir því að staðan er erfið,“ segir hún og setur spurningarmerki við þá kröfu foreldranna að leikskólastjórinn verði settur af strax.
„Það vita allir sem komið hafa að rekstri og starfsmannahaldi að við getum ekki unnið þannig gagnvart starfsmönnum okkar. Við förum hins vegar af stað með rannsókn,“ segir hún og að foreldrum sem hafi haft eitthvað við leikskólastarfið að athuga hafi verið boðið í einstaklingsviðtöl, enda hafi þeir óskað nafnleyndar. Allar ásakanir séu teknar alvarlega. Öryggi barna sé alltaf í forgrunni.
„Starfsmaður okkar sætir þarna ásökunum og við verðum að standa með og fara eftir þeim lögum og reglum sem gilda í slíkum tilvikum,“ segir Árelía Eydís og nefnir að ásakanir sem á leikskólastjórann hafi verið bornar hafi ekki verið af þeim toga að ástæða hafi verið til að færa hann til í starfi eins og sakir standa.
„Við erum að takast á við mikla krísu og það verður að taka tillit til fleiri atriða, þ. á m. leikskólastjórans,“ segir hún.
Tjáir sig ekki
Leikskólastjóri Maríuborgar, Agnes Veronika Hauksdóttir, vildi ekkert tjá sig um málið þegar Morgunblaðið ræddi við hana í gær.