„Fyrst og fremst þá vorum við ekki nægilega góðir,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson í samtali við Morgunblaðið eftir tapið örlagaríka gegn Króatíu í gærkvöldi.
„Við gáfum færi á okkur sem þeir nýttu sér vel. Við náðum ekki upp sömu frammistöðu og í síðustu tveimur leikjum. Við gerum of mörg tæknileg mistök líka og svo förum við illa með dauðafærin. Það er mjög dýrt í svona leik. Takturinn var allan tímann með þeim en ekki okkur og okkur tókst aldrei að gera þeim erfitt fyrir og setja almennilega pressu á þá.
Það vantaði ekkert upp á ákefðina og baráttuna hjá mínum mönnum. Þeir lögðu sig fram allan tímann og það var barátta í liðinu en stundum dugar það ekki til. Stundum hittir þú á það og stundum ekki og þetta var ekki okkar besti leikur,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Fóru yfir málin í hálfleik
„Ég veit ekki alveg hvað var í gangi, það er erfitt að meta þetta svona strax eftir leik,“ sagði línumaðurinn Ýmir Örn Gíslason þegar hann var spurður út í varnarleik liðsins en Ísland var átta mörkum undir í hálfleik, 20:12.
„Við töluðum um það í hálfleik að við vildum ná upp betri varnarleik og þröngva þá í erfiðari skot. Þá gætum við mögulega klukkað fleiri bolta í viðbót og það tókst. Þá bara kviknar allsvakalega á markmanninum þeirra og þá jafnaðist þetta einhvern veginn út. Þetta endaði í sex mörkum, sem er ansi tæpt, og það gerir þetta helvíti súrt,“ bætti Ýmir Örn við í samtali við Morgunblaðið.