Edda Gunnlaugsdóttir
eddag@mbl.is
Franska tískuhúsið Chanel sýndi hátískulínuna (e. haute couture) fyrir árið 2025 í París fyrr í vikunni. Hátískuhluti fyrirtækisins var settur af stað af Gabrielle Chanel árið 1915 sem gera 110 ár síðan fyrstu hátískuflíkur Chanel litu dagsins ljós. Enn þann dag í dag er verið að vinna með sömu einkenni, efni og jafnvel snið þó að það sé búið að færa það í nútímalegri stíl.
Orðin haute couture koma úr frönsku og þýða í raun hátíska og sérsaumur. Hátíska á rætur sínar að rekja aftur til 16. aldar og upphaflega átti hún við korselett sem var sérsaumað á eigandann. Á nítjándu öld varð París miðja hátískunnar og voru fötin gerð úr hágæðaefnum og saumuð af þeim allra færustu. Í dag er hátíska verndað starfsheiti og þurfa tískuhús að uppfylla ströng skilyrði ef þau vilja verða alvöru hátískuhús. Þetta var gert til að geta haldið uppi þessu einstaka handverki. Í Frakklandi er sérstök nefnd sem heldur úti lista yfir þau hús, sem er uppfærður ár hvert. Kröfur sem hátískuhúsin þurfa að uppfylla eru meðal annars þær að fötin verða að vera sérsaumuð á hvern viðskiptavin fyrir sig, saumastofan verður að vera í París, að minnsta kosti fimmtán manns séu í fullu starfi hjá saumastofunni og það verður að kynna línu með fimmtíu nýju flíkum eða fleiri, tvisvar á ári, í janúar og í júlí. Þau tískuhús sem eru meðal annars á listanum yfir gild hátískuhús núna eru Chanel, Dior, Maison Margiela, Alexandre Vauthier og Givenchy.
Stórkostlegt handverk
Ótakmarkað sköpunarfrelsi, einstök þekking sem gengur kynslóða á milli, þolinmæði og afburðasaumaskapur sem er auðþekkjanlegur samstundis hefur einkennt hátískulínur Chanel frá upphafi. Í þessari línu mátti finna klassísk einkenni frá Chanel, ofin efni, fléttuð smáatriði, flæðandi kjóla og dömuleg snið. Innblásturinn að línunni var sóttur til uppáhaldslitapallettu Gabrielle Chanel og var því meiri litagleði en oftar áður. Fötin í hátískulínunni getur tekið hundruð klukkustunda að sníða, sauma saman og bródera.
Litir eins og skærgulur, fjólublár, rauður, og pastellitir eins og smjörgulur, ljósbleikur og fjólublár voru áberandi. Svartur og hvítur voru þó á sínum stað en það er litasamsetning sem tískuhúsið er hvað þekktast fyrir. Í hverri hátískulínu Chanel er brúðarkjóll sem í þessari línu var stuttur kjóll með hvítu belti um mittið. Slóðinn var síðari að aftan og bróderaður með semalíusteinum. Yfir kjólinn klæddist fyrirsætan, Lulu Tenney, stuttum jakka sem var bróderaður með silfurlituðum pallíettum með slaufu.
Það er hönnunarstúdióið hjá Chanel sem sá um að hanna línuna en yfirleitt er það einn yfirhönnuður sem er tengdur við línuna. Það eru þó aðeins nokkrar vikur síðan tilkynnt var að Matthieu Blazy hefði verið ráðinn nýr listrænn stjórnandi tískuhússins en hann mun hefja störf í apríl á þessu ári og bíða tískuunnendur spenntir eftir því hvað hann gerir með merkið. Hann kemur til Chanel frá ítalska tískuhúsinu Bottega Veneta.