Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson skoraði mark NAC Breda þegar liðið gerði jafntefli við Heracles Almelo, 1:1, í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Elías Már hefur verið óstöðvandi að undanförnu en hann hefur skorað fimm mörk í…

Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson skoraði mark NAC Breda þegar liðið gerði jafntefli við Heracles Almelo, 1:1, í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Elías Már hefur verið óstöðvandi að undanförnu en hann hefur skorað fimm mörk í síðustu sex deildarleikjum fyrir Breda, sem er í áttunda sæti deildarinnar. Elías Már lék allan leikinn fyrir Breda.

Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir, Gauti Guðmundsson, Jón Erik Sigurðsson, Sturla Snær Snorrason og Tobias Hansen taka öll þátt á HM í alpagreinum sem fer fram í Saalbach í Austurríki 4.-16. febrúar.

Knattspyrnumaðurinn Pétur Bjarnason leikur ekki með Vestra í Bestu deildinni á komandi tímabili. Í samtali við Fótbolta.net sagðist Pétur ekki ráðgera að spila í sumar, að minnsta kosti væri það staðan eins og er.

Knattspyrnumennirnir Mikael Egill Ellertsson og Kristian Nökkvi Hlynsson hafa endanlega gengið frá sínum málum. Fyrr í vikunni var sagt frá því að Mikael væri á leið frá Venezia til Genoa á Ítalíu fyrir 3,5 milljónir evra og það er nú frágengið en hann verður áfram hjá Venezia sem lánsmaður út tímabilið. Þá er Kristian farinn í láni frá Ajax í Amsterdam til Spörtu í Rotterdam til vorsins.