Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
Tillaga Einars Þorsteinssonar borgarstjóra um hækkun gatnagerðargjalda í Reykjavík var samþykkt af meirihluta borgarstjórnar á borgarstjórnarfundi sem haldinn var sl. þriðjudag.
Það voru borgarfulltrúar meirihlutans, þ.e. Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata og Viðreisnar, sem greiddu atkvæði með tillögunni, en borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Flokks fólksins og Vinstri-grænna voru á móti. Borgarfulltrúar Sósíalista sátu hjá.
Samþykkt þessarar tillögu hefur mikla hækkun gatnagerðargjalda í för með sér, en eins og frá var greint í Morgunblaðinu á þriðjudag munu gjöld fyrir 60 fermetra íbúð í fjölbýli hækka um 90%.
Slík hækkun byggingarkostnaðar sem hækkun gatnagerðargjaldanna hefur í för með sér er viðbótarskattur á húsbyggjendur og mun hafa neikvæð áhrif á húsnæðismarkaðinn í borginni, að mati borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Sögðu þeir að með hækkuninni myndi Reykjavíkurborg enn auka álögur á húsbyggjendur og þar með íbúðakaupendur. Ekkert sveitarfélag á landinu legði jafnhá gjöld á húsbyggjendur og Reykjavíkurborg og töldu borgarfulltrúarnir líklegt að hækkun gatnagerðargjaldanna myndi skila sér í enn hærra íbúðaverði.