Það getur verið varasamt að ryksuga, eins og dönsk kona fékk að reyna.
Það getur verið varasamt að ryksuga, eins og dönsk kona fékk að reyna. — Morgunblaðið/Jóra
41 árs gömul kona beið bana í Kaupmannahöfn í febrúar 1955 þegar hún var að ryksuga heimili sitt. Frá þessu var greint á forsíðu Morgunblaðsins. „Skyndilega fékk hún rafmagnsstraum frá ryksugunni og féll meðvitundarlaus um koll

41 árs gömul kona beið bana í Kaupmannahöfn í febrúar 1955 þegar hún var að ryksuga heimili sitt. Frá þessu var greint á forsíðu Morgunblaðsins.

„Skyndilega fékk hún rafmagnsstraum frá ryksugunni og féll meðvitundarlaus um koll. Fjögurra ára dóttir hennar hljóp í næstu íbúð og þar gat fólkið skilið af grátandi telpunni hvað skeð hafði. Konan var látin er á sjúkrahús kom. Er nú í rannsókn hvaða bilun í ryksugunni hafi valdið dauða hennar.“

Sama dag lést önnur kona í Kaupmannahöfn þegar hún var að hreinsa glugga í íbúð sinni á fjórðu hæð. Konan sem var 82 ára féll út um gluggann og hlaut þegar bana, er niður kom.

Á forsíðu Morgunblaðsins var líka greint frá því að bílstjóri rúmenskrar sendisveitar hefði leitað á náðir lögreglunnar í Kaupmannahöfn og beðið hælis sem flóttamaður. Sagði hann að kona sín væri fangi í sendisveitarhúsinu. Rúmenski sendiherrann lék mótleik, stakk fréttamönnum í samband við bílstjórafrúna. Hún sagði: „Ég hefði getað drepið manninn minn, ef ég hefði vitað að hann ætlaði að flýja. Nú vil ég helzt fara heim til Rúmeníu.“