Kanadíska ríkisstjórnin hefur nú svipt söngkonuna Buffy Sainte-Marie einni af æðstu heiðursorðum landsins eftir að í ljós kom í fréttum árið 2023 að fyrri fullyrðingar hennar um uppruna sinn sem frumbyggi ættu ekki við rök að styðjast
Kanadíska ríkisstjórnin hefur nú svipt söngkonuna Buffy Sainte-Marie einni af æðstu heiðursorðum landsins eftir að í ljós kom í fréttum árið 2023 að fyrri fullyrðingar hennar um uppruna sinn sem frumbyggi ættu ekki við rök að styðjast. Fréttamiðillinn NPR greinir frá og segir að Sainte-Marie hafi hlotið orðuna árið 1997 fyrir þjónustu sína við frumbyggja Kanada. Þá hafi hún lengi verið viðurkennd sem einn helsti listamaður frumbyggja.