Íslandsmeistarar Vals unnu erkifjendur sína í KR, 96:89, eftir framlengdan leik á Meistaravöllum í 18. umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Eftir leikinn er Valur í fjórða sæti deildarinnar með 20 stig en KR í áttunda sæti með 16.
Liðin skiptust á að vera með forystuna í leiknum en Valsmenn voru yfir með sex stigum eftir þriðja leikhluta, 69:63. KR-ingar komu sterkir til baka í fjórða leikhluta og náðu að jafna metin. Í framlengingunni voru Valsmenn aftur á móti magnaðir en Kári Jónsson fór á kostum. Adam Ramstedt var stigahæstur í liði Vals með 24 stig en hjá KR skoraði Vlatko Granic 27 stig og tók 26 fráköst. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson átti þá einnig frábæran leik í liði KR en hann skoraði 22 stig, tók tíu fráköst og gaf 13 stoðsendingar.
Njarðvíkingar sóttu þá stigin tvö þegar liðið vann nauman sigur á ÍR, 95:91, í Breiðholtinu í gærkvöldi. Njarðvíkingar eru í þriðja sæti deildarinnar með 24 stig en ÍR er í níunda sæti með 16, átta stigum fyrir ofan fallsæti.
Staðan var jöfn í hálfleik, 51:51, en Njarðvíkurliðið var aðeins sterkara í þeim seinni, vann báða leikhluta með tveimur stigum, og leikinn með fjórum. Khalil Shabazz skoraði 26 stig, tók 11 fráköst og gaf 2 stoðsendingar í liði Njarðvíkur en Jacob Falko skoraði 34 stig, tók átta fráköst og gaf níu stoðsendingar í liði ÍR.