Marta María Winkel Jónasdóttir
mm@mbl.is
Það að velja sér gallabuxur getur verið heilmikil listgrein. Gallabuxur þurfa að passa á líkamann og með réttu sniði er hægt að draga fram það allra besta. Útvíðar gallabuxur njóta mikilla vinsælda þessa dagana. Á meðan unglingar vilja gallabuxur sem eru svo síðar að þær dragast eftir jörðinni vilja mæðurnar, ömmurnar og frænkurnar hafa þær eins síðar og hægt er en þó án þess að þær snerti jörðina. Gallabuxur eyðileggjast smám saman ef þær eru látnar snerta malbik daglega.
Að vera í útvíðum gallabuxum og mjög háum hælum getur verið sparilegt þótt gallaefni flokkist kannski ekki undir einhvern galaklæðnað. Um leið og gallabuxurnar ná alveg upp í mittið verða til flottari línur. Töluvert flottari en ef gallabuxurnar ná upp að magasvæðinu þar sem það er breiðast. Það er ekki hægt að finna út úr þessu nema gefa sér tíma og máta þangað til hið rétta snið finnst. Málið með gallabuxur er að þú þarft ekki að eiga 20 stykki. Það er nóg að eiga einar ef þær smellpassa og þér líður vel í þeim.
Það eru þó ekki bara útvíðar gallabuxur sem þykja lekkerar því að gallabuxur með víðum skálmum njóta vinsælda núna. Þær geta verið elegant ef rétta sniðið finnst. Með því að fara í rétta skyrtu, vesti eða jakka við er hægt að klæða þær upp og nota hversdags þótt alþingismenn megi helst ekki láta sjá sig í slíkum eins og Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar fékk að reyna í liðinni viku. Það vinna sem betur fer ekki allir á Alþingi þannig að hin venjulega meðaljóna getur glaðst og töfrað fram lítið ævintýri með fatasamsetningu sinni og klæðaburði í gallafötum frá toppi til táar. Og verið flottust!