Skólavörðustígur Gnægð ferðamanna er jafnan í miðborginni.
Skólavörðustígur Gnægð ferðamanna er jafnan í miðborginni. — Morgunblaðið/Eyþór
Allt kemur til okkar að utan, og það nýjasta er að borgaryfirvöld á Ítalíu hafa ákveðið að banna svokölluð lyklabox, sem gerðu fólki kleift að leigja út svefnstaði með kóðalyklum, þannig að gestur og leigusali þurftu aldrei að hittast

Allt kemur til okkar að utan, og það nýjasta er að borgaryfirvöld á Ítalíu hafa ákveðið að banna svokölluð lyklabox, sem gerðu fólki kleift að leigja út svefnstaði með kóðalyklum, þannig að gestur og leigusali þurftu aldrei að hittast. Með slíku banni á að reyna að draga úr massatúrismanum sem er að ganga fram af almenningi á vinsælustu ferðamannastöðum heimsins. Þessi box tíðkast líka hér og manni finnst þetta ósköp kuldaleg gestamóttaka, og ekki til þess fallin að kynna landið sem samfélag manna sem tekur hlýlega á móti fólki. Síðan eru auðvitað hótel með persónulegri þjónustu og bukki og beygjum, en það færist líka í vöxt að erlend stórfyrirtæki sæki í að fá hér lönd og aðstöðu á okkar fallega landi til að reisa „exklúsíf“ lúxushótel með útsýni inniföldu, en viðbúið að lítið verði þá eftir af arði í landinu.

Það er slæmt ef svo er komið að EES-lögin um frjálsa för fólks og fjármagns ræna okkur smám saman landi og þjóð. Við hefðum þá betur látið ógert að nema hér land.

Sunnlendingur