Jón Ármann Steinsson
Jón Ármann Steinsson
Jón Ármann Steinsson, útgefandi bókarinnar Leitin að Geirfinni, hefur ritað ráðuneytisstjóranum í dómsmálaráðuneytinu bréf þar sem fram kemur að öll gögn sem urðu til við rannsóknir vegna bókarinnar verði afhent dómsmálaráðherra

Kristján Jónsson

kris@mbl.is

Jón Ármann Steinsson, útgefandi bókarinnar Leitin að Geirfinni, hefur ritað ráðuneytisstjóranum í dómsmálaráðuneytinu bréf þar sem fram kemur að öll gögn sem urðu til við rannsóknir vegna bókarinnar verði afhent dómsmálaráðherra. Jón Ármann staðfesti þetta við Morgunblaðið.

Í bréfinu kemur fram að við vinnslu bókarinnar hafi komið í ljós sterkar vísbendingar um að Geirfinnsmálið sé morðmál en ekki mannshvarf. Þær hafi ekki allar verið birtar í bókinni. Jón Ármann segir að í bréfinu séu sett fram nokkur atriði sem aðstandendur bókarinnar vonist eftir að ráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, hlutist til um í framhaldinu.

Hvarf Geirfinns Einarssonar í Keflavík 19. nóvember 1974 verði rannsakað, frumrannsókn lögreglunnar í Keflavík verði rannsökuð, málsmeðferð Guðmundar- og Geirfinnsmála verði rannsökuð og ítarleg leit verði gerð að týndum gögnum.

Bókin kom út 19. nóvember á síðasta ári og er eftir Sigurð Björgvin Sigurðsson. Einn viðmælenda í bókinni segist hafa orðið vitni að því sem ungur drengur að Geirfinnur hafi orðið undir í átökum við annan mann. Hafi hann væntanlega hlotið bana af samkvæmt frásögninni en átökin hafi byrjað fyrir utan heimili Geirfinns og haldið áfram í bílskúrnum. Nafn vitnisins kemur ekki fram en einnig er vísað til nágranna sem hafi heyrt öskur og læti koma frá húsinu þetta kvöld.

Ýmislegt fleira er nefnt í bókinni sem gengur í berhögg við atburðalýsingu þessa kvölds sem margir landsmenn þekkja og á að hafa tengst dularfullu stefnumóti í Hafnarbúðinni. Aðstandendur bókarinnar telja því tilefni til að rannsaka hvarf Geirfinns frá grunni.

Lögreglan í Keflavík hætti rannsókn málsins sumarið 1975 og var málið þá óleyst mannshvarf. Síðar var málið tekið upp í Reykjavík og rann saman við rannsókn á hvarfi Guðmundar Einarssonar í Hafnarfirði. Tveir menn voru dæmdir fyrir aðild að morði þeirra beggja, Sævar Ciesielski og Kristján Viðar Viðarsson, en sýknaðir af morðum í Hæstarétti 2018.

Höf.: Kristján Jónsson