Fiskur Ekki vantar ýsu á Íslandi.
Fiskur Ekki vantar ýsu á Íslandi. — Morgunblaðið/Ómar
Í júní á síðasta ári voru flutt inn 1.185 kíló af rússneskri ýsu til Íslands og var verðmæti hennar 5.380 evrur eða 792.420 íslenskar krónur, sem gerir 668,7 krónur á hvert kíló. Samkvæmt skráningu Hagstofu Íslands er um að ræða landfryst, millilögð eða lausfryst ýsuflök

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Í júní á síðasta ári voru flutt inn 1.185 kíló af rússneskri ýsu til Íslands og var verðmæti hennar 5.380 evrur eða 792.420 íslenskar krónur, sem gerir 668,7 krónur á hvert kíló. Samkvæmt skráningu Hagstofu Íslands er um að ræða landfryst, millilögð eða lausfryst ýsuflök.

Það er orðið afar sjaldgæft að flutt sé inn sjávarfang frá Rússlandi til Íslands, sérstaklega unnar vörur. Á árum áður var töluvert af rækju flutt inn til vinnslu á Íslandi, en ekki er vitað til þess að mikil eftirspurn hafi verið eftir ýsu hér á landi, sérstaklega í ljósi stórfelldrar aukningar í útgáfu ýsukvóta síðustu ár.

Útgefinn ýsukvóti á yfirstandandi fiskveiðiári er meira en 76 þúsund tonn, en hann hefur aukist jafnt og þétt ár frá ári frá fiskveiðiárinu 2019/2020 þegar hann var tæp 42 þúsund tonn.

Þúsund krónur á kíló

Í skráningu Hagstofunnar er að finna tollverð, svokallað CIF-verð, sem felur í sér kaupverð vörunnar auk flutningskostnaðar, tryggingakostnaðar og alls annars kostnaðar sem leggst á verð vörunnar erlendis og á leið til landsins. Er CIF-verð gefið upp sem 1.234.895 krónur sem gera 1.042 krónur á kíló.

Ekki hefur fengist upplýst hver hafi staðið að umræddum innflutningi eða í hvaða tilgangi.

Höf.: Gunnlaugur Snær Ólafsson