Meistaradeildin
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Ensku liðin voru misheppin með drátt þegar dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildar karla í fótbolta í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í gær.
Liverpool, sem hafnaði í efsta sæti deildarkeppninnar og trónir á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, mætir Frakklandsmeisturum París SG, Arsenal mætir PSV frá Hollandi og Aston Villa mætir Club Brugge frá Belgíu.
Hákon Arnar Haraldsson og liðsfélagar hans í Lille mæta Borussia Dortmund frá Þýskalandi og þá verða tveir nágrannaslagir í sextán liða úrslitunum: Bayern München mætir Bayer Leverkusen og Real Madrid mætir Atlético Madrid.
Hákon gæti mætt Barcelona
Þá var einnig dregið í átta liða úrslit keppninnar og undanúrslitin en takist Liverpool að vinna sína viðureign gegn París SG, sem og Aston Villa sína viðureign gegn Club Brugge, þá munu ensku liðin mætast í átta liða úrslitunum.
Hákon Arnar og liðsfélagar hans í Lille mæta annaðhvort Benfica eða Barcelona, takist þeim að komast áfram í átta liða úrslitin, og ef Arsenal tekst að leggja PSV að velli mætir liðið annaðhvort Real Madrid eða Atlético Madrid í átta liða úrslitunum.
Leikirnir í sextán liða úrslitum keppninnar fara fram dagana 4.-5. mars og 11.-12. mars en leikið verður heima og að heiman, eins og í átta liða úrslitunum og undanúrslitum keppninnar.
Leikirnir í átta liða úrslitunum fara fram 8.-9. apríl og 15.-16. apríl og undanúrslitin dagana 29.-30. apríl og 6.-7. maí.
Úrslitaleikurinn fer svo fram þann 31. maí á Allianz Arena, heimavelli Bayern München.
Leikirnir í 16-liða úrslitunum:
Club Brugge – Aston Villa
Borussia Dortmund – Lille
Real Madrid – Atlético Madrid
Bayern München – Bayer Leverkusen
PSV – Arsenal
Feyenoord – Inter Mílanó
París SG – Liverpool
Benfica – Barcelona