Daði Már Kristófersson
Daði Már Kristófersson — Morgunblaðið/Kristófer Liljar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ákveðið að falla frá umdeildum áformum um að breyta tollflokkun erlendra mjólkurvara, nánar tiltekið pitsaosts með viðbættri jurtaolíu. Frá þessu greindi Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra á samfélagsmiðlum í gær

Hermann Nökkvi Gunnarsson

hng@mbl.is

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ákveðið að falla frá umdeildum áformum um að breyta tollflokkun erlendra mjólkurvara, nánar tiltekið pitsaosts með viðbættri jurtaolíu.

Frá þessu greindi Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra á samfélagsmiðlum í gær.

Sex samtök bænda höfðu gagnrýnt áform Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, verulega og sagt að breytingin myndi valda stórauknum innflutningi og þar með myndu íslenskir bændur verða af hundruðum milljóna króna.

„Ég hef heyrt áhyggjur bænda af því að til standi að breyta tollflokkun jurtaosts til samræmis við alþjóðlegar skuldbindingar og að breytingin kunni að hafa í för með sér neikvæð áhrif á einhvern hluta innlendrar framleiðslu og samkeppnisstöðu bænda,“ skrifar Hanna Katrín.

Málið snýst um tollflokkun á pitsaosti þar sem ágreiningur hefur verið um tollflokkun hans fyrir dómstólum. Danól ehf. flutti inn pitsaost með íblandaðri jurtaolíu og hefur mótmælt því að hann falli undir 4. kafla tollalaga sem ber 30% toll. Málið fór fyrir héraðsdóm, sem nýlega hafnaði kröfu Danóls. Málið er ekki það fyrsta um þetta efni og í dómi héraðsdóms segir að rétt eins og í fyrri málshöfðun stefnanda reyni hann að fá hnekkt afstöðu tollyfirvalda um tollflokkunina. Þá segir: „Með sama hætti og í fyrri málshöfðun stefnanda er helsta röksemd hans sú að afstaða tollyfirvalda sé efnislega röng og því beri að leggja afstöðu stefnanda til grundvallar, sem einnig fái stoð í gögnum af vettvangi þjóðaréttarins. Þessum málatilbúnaði hefur þegar verið hafnað með afdráttarlausum hætti, sbr. dóm Landsréttar í máli nr. 462/2021, sem staðfesti sem fyrr segir héraðsdóm með knappri athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hans.“

Hanna Katrín kveðst hafa átt í góðu samtali við Daða Má um alla anga þessa máls og í kjölfarið hefði hann ákveðið að afturkalla áform um breytingar að sinni.

„Og hefja frekari skoðun málsins og eiga samráð við hagaðila með það að markmiði geta sameinað alþjóðlegar skuldbindingar, hagsmuni bænda og hagsmuni neytenda í þessu máli,“ skrifar Hanna. » 40

Höf.: Hermann Nökkvi Gunnarsson