Hátíðir eiga að lyfta okkur upp úr hversdagslífinu, rifja upp, að við erum ekki maurar í þúfu, heldur einstaklingar í sálufélagi við ástvini, vini, fjölskyldu, samherja og samlanda. Þótt árin færist yfir, er afmæli ætíð tilefni til hátíðarhalda

Hátíðir eiga að lyfta okkur upp úr hversdagslífinu, rifja upp, að við erum ekki maurar í þúfu, heldur einstaklingar í sálufélagi við ástvini, vini, fjölskyldu, samherja og samlanda.

Þótt árin færist yfir, er afmæli ætíð tilefni til hátíðarhalda. Þá hefur mér tekist að lifa af enn einn hringinn, sem jörðin fer í kringum sólina. Þegar ég átti 72 ára afmæli hinn 19. febrúar í ár, hélt ég upp á það með grillveislu heima hjá mér í Rio de Janeiro. Þá leituðu á hugann liðin stórafmæli, enda er minningin eina paradísin, sem enginn getur rekið okkur út úr.

Þegar ég varð þrítugur árið 1983, héldu vinir mínir mér fjölmennan fagnað í Héðinshúsinu og flaug ég sérstaklega til Reykjavíkur frá Oxford, þar sem ég stundaði þá nám. Þeir Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Vilmundur Gylfason, formaður Bandalags jafnaðarmanna, kvöddu sér báðir hljóðs í samsætinu, og mæltist þeim vel.

Ég hélt upp á fertugsafmælið árið 1993 í góðra vina hóp í veitingastaðnum Skólabrú, þar sem þeir Davíð Oddsson, Björn Bjarnason, Kjartan Gunnarsson og Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson og konur þeirra samfögnuðu mér.

Ég hélt upp á fimmtugsafmælið árið 2003 með móttöku á Hótel Sögu og kvöldverði með nokkrum vinum í Skólabæ, sem þá var samkomuhús háskólamanna. Fluttu þeir Davíð Oddsson og Ólafur Þ. Harðarson snjallar ræður í móttökunni.

Ég hélt upp á sextugsafmælið árið 2013 með móttöku í Háskólanum og kvöldverði í Þingholti, þar sem þeir Davíð, Kjartan og Gunnlaugur Sævar færðu mér skemmtilega afmælisgjöf, málverk eftir Stephen Lárus Stephen, sem nefnist „Hannes ófullgerður“, áskorun um að halda áfram á markaðri braut.

Á sjötugsafmælinu árið 2023 var ég á kjötkveðjuhátíðinni í Rio de Janeiro, en í maí það ár hélt Háskólinn fjölmenna starfslokaráðstefnu, þar sem margir góðir vinir, erlendir og innlendir, fluttu fróðlega fyrirlestra, sem aðgengilegir eru á netinu. Forseti Íslands bauð öllum ræðumönnunum til móttöku á Bessastöðum, forseti Alþingi bauð erlendu gestunum í Alþingishúsið og fjármálaráðherra hélt kvöldverð í Ráðherrabústaðnum. Gat viðskilnaður minn við Háskólann ekki orðið ánægjulegri.