Szombathely Kristinn Pálsson reynir skot í leiknum gegn Ungverjalandi í fyrrakvöld þar sem heimamenn sigruðu með níu stiga mun.
Szombathely Kristinn Pálsson reynir skot í leiknum gegn Ungverjalandi í fyrrakvöld þar sem heimamenn sigruðu með níu stiga mun. — Ljósmynd/FIBA
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Um níuleytið annað kvöld verður ljóst hvort EM-draumur karlalandsliðsins í körfubolta verður að veruleika. Þá lýkur tveimur síðustu leikjunum í undankeppni EM 2025 þegar Ísland tekur á móti Tyrkjum í Laugardalshöllinni klukkan 19.30 og á sama tíma mætast Ítalir og Ungverjar í Reggio Calabria

EM 2025

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Um níuleytið annað kvöld verður ljóst hvort EM-draumur karlalandsliðsins í körfubolta verður að veruleika. Þá lýkur tveimur síðustu leikjunum í undankeppni EM 2025 þegar Ísland tekur á móti Tyrkjum í Laugardalshöllinni klukkan 19.30 og á sama tíma mætast Ítalir og Ungverjar í Reggio Calabria.

„Þetta er enn í okkar höndum þó við höfum misstigið okkur aðeins í Ungverjalandi. Við stefnum á að vinna Tyrkina og með fulla Laugardalshöll og alvöru stemningu á allt að vera hægt,“ sagði landsliðsmaðurinn Kristinn Pálsson við Morgunblaðið en hann og félagar hans máttu þola tap gegn Ungverjum í Szombathely í fyrrakvöld, 87:78, og misstu þar af fyrra tækifærinu til að tryggja sér EM-sætið.

Alvöru læti og stuðning

Tyrkir koma í Laugardalshöllina eftir tap gegn Ítölum á heimavelli, 80:67, í fyrrakvöld en báðar þjóðirnar eru komnar á EM og annað kvöld ræðst hvort Ísland eða Ungverjaland fylgir þeim. Ísland kemst á EM með sigri gegn Tyrkjum en þarf annars að treysta á að Ítalir sigri Ungverja á sama tíma.

„Við verðum að halda því til haga að þetta er enn í okkar höndum. Við erum bjartsýnir á að geta sigrað Tyrkina á heimavelli og í fyrra töpuðum við aðeins fyrir þeim á lokaskotinu í Istanbúl, sem var mjög svekkjandi því okkur fannst við hafa gert nóg til að vinna,“ sagði Kristinn en Tyrkir unnu þann leik 76:75 eftir frábæra frammistöðu íslenska liðsins.

„Við erum bjartsýnir að fá þá heim í kuldann og sjá hvernig þeir aðlagast íslensku umhverfi. Ég vona bara að við fáum alvöru læti og alvöru stuðning í stúkunni og það mun rífa okkur áfram,“ sagði Kristinn.

Tveir sterkir bætast við

Hann segir að tyrkneska liðið sé hörkulið, með fimm leikmenn úr Euroleague og góða menn í öllum stöðum.

„Þeir hafa bætt við tveimur sterkum, Cedi Osman er fyrrverandi NBA-maður og er með flottar tölur í Euroleague og Shane Larkin, einn af bestu mönnum Euroleague undanfarin ár, er með landsliðinu á ný eftir nokkurra ára fjarveru. Þeir leggja örugglega allt í sölurnar og mæta væntanlega mjög svekktir til leiks eftir að hafa tapað fyrir Ítölum á heimavelli á fimmtudaginn,“ sagði Kristinn en Ísland myndi ná öðru sætinu af Tyrkjum með tveggja stiga sigri í leiknum.

Tapa ekki aftur heima

Ef Ísland tapar leiknum þarf að treysta á að Ítalir vinni Ungverja. Kristinn telur allar líkur á að það verði raunin.

„Ég á mjög erfitt með að trúa því að Ítalir tapi tveimur heimaleikjum í röð. Ég spilaði sjálfur á Ítalíu og á fullt af vinum þar og veit að það varð allt vitlaust þegar við unnum þar í nóvember. Það var kallað eftir hausnum á þjálfaranum – þetta var risastórt og við áttum frábæran leik.

Þeir leyfa því ekki að gerast aftur – við áttum frábæran leik þá. Þetta snýst annars um dagsformið hjá Ítölunum. Ég held að Ungverjarnir hafi gegn okkur átt einn sinn besta leik og finnst ólíklegt að þeir vinni á Ítalíu,“ sagði Kristinn Pálsson.

Höf.: Víðir Sigurðsson