Kristján Pálsson
Lionsklúbbur Ísafjarðar var stofnaður 25. júní 1957 og hefur því verið starfandi í hartnær 68 ár. Hann hefur staðið fyrir margs konar fjáröflunum þessi ár. Selt heimilisvörur, verkað harðfisk. Bleikjusala var sameiginlegt verkefni Lionsklúbba á norðanverðum Vestfjörðum. Fengu félagsmenn viðurkenningu fyrir góðan árangur af sölunni og var fjallað um hana í Chicago. Við fengum um árabil lánað skipið Guðnýju til fiskveiða og var aflanum jafnan landað í Norðurtanga. Aflaðist undantekningarlaust vel undir styrkri skipstjórn Kristjáns Jónssonar. Klúbburinn naut sérstakrar velvildar Sigurðar Sveinssonar frá Góustöðum útgerðarmanns og einnig kaupanda aflans, Norðurtangans. Andvirðið rann óskipt til vistheimilisins Bræðratungu.
Síðustu 25 ár hefur aðalfjáröflun verið skötuverkun, sem er, eins og allir vita, ómissandi á Þorláksmessu. Við þökkum íbúum Ísafjarðarbæjar og annars staðar fyrir að taka „lionsskötunni“ sem og öðrum fjáröflunum okkar sérlega vel.
Andvirðinu hefur verið varið til margvíslegra mála, einkum þó til heilbrigðisstofnana, heimilis aldraðra og þroskaheftra og Rauða krossins, og auk þess höfum við notið aðstoðar Ísafjarðarkirkju til hjálpar þeim sem veikindi eða slys hafa hrjáð.
Auk þessa studdum við, ásamt Ísafjarðarbæ og fleirum, vini okkar Færeyinga um eina milljón þegar þeir urðu fyrir tjóni í óveðri á Suðuroy. Andvirðið var nýtt til kaupa á bifreið til að aka eldri borgurum á hjúkrunarheimili í Vági.
Í dag gáfu félagar í Lionsklúbbi Ísafjarðar kr. 600.000 til hjúkrunarheimilisins Eyrar til kaupa á tveimur stórum sjónvarpsskjáum, sem kemur sér einkar vel fyrir íbúa stofnunarinnar. Auður Ólafsdóttir hjúkrunarstjóri veitti gjöfinni viðtöku og kunni Lionsklúbbi Ísafjarðar bestu þakkir fyrir þessa góðu gjöf.
Höfundur er formaður Lionsklúbbs Ísafjarðar.