Michelle Trachtenberg, sem einna þekktust er fyrir hlutverk sín í þáttunum Buffy the Vampire Slayer og Gossip Girl, er látin en leikkonan var einungis 39 ára. AFP greinir frá því að lögreglan hafi fundið hana meðvitundarlausa í íbúð sinni á Manhattan. Þá hafi hún verið úrskurðuð látin af viðbragðsaðilum en dánarorsök liggi ekki fyrir. Ekki er þó talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Segir jafnframt á fréttaveitunni að leikkonan hafi nýlega gengist undir lifrarígræðslu og því mögulega upplifað fylgikvilla. Trachtenberg ólst upp í New York og hóf feril sinn sem barnastjarna, fór m.a. með hlutverk aðalpersónunnar í kvikmyndinni Harriet The Spy árið 1996 þar sem hún lék á móti Rosie O'Donnell. Þá hafa þær O'Donnell og Sarah Michelle Geller, ásamt fleiri stjörnum, minnst leikkonunnar á samfélagsmiðlum sínum.