„Mig langar mikið til að breiða út þennan „boutique fitness“-boðskap. Í okkar tímum er ólgusjór af orku og þegar ég horfi yfir hópinn fyllist hjartað mitt af gleði,“ segir Helga Guðný sem er með brennandi ástríðu fyrir barre.
„Mig langar mikið til að breiða út þennan „boutique fitness“-boðskap. Í okkar tímum er ólgusjór af orku og þegar ég horfi yfir hópinn fyllist hjartað mitt af gleði,“ segir Helga Guðný sem er með brennandi ástríðu fyrir barre. — Ljósmyndir/Ingólfur Guðmundsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ég náði strax að búa til þá stemningu sem mig langaði til að hafa. Ég þekki allar konurnar mínar með nafni og þær eru búnar að kynnast. Það er ótrúlega skemmtilegt.

Á Ránargötunni býr Helga Guðný ásamt eiginmanni og þremur af fjórum sonum. Hún er aldrei þessu vant heima með þeim yngsta, enda vetrarfrí í skólum þegar blaðamann ber að garði. Helga Guðný býður upp á kaffi og súkkulaðihjúpað mangó og segir frá barre-ævintýrinu mikla, en fyrir tilviljun endaði hún, grafískur hönnuður, með brennandi ástríðu fyrir þessari sérstöku líkamsrækt.

Mætti 28 daga af 30

Helga Guðný er fædd í Bandaríkjunum sem átti eftir að koma sér vel síðar í lífinu. Rúmlega tvítug flutti hún til Boston með barnungan son sinn til að læra grafíska hönnun. Eftir námið flutti Helga Guðný heim reynslunni ríkari og fékk fljótlega vinnu hjá Iceland Review við að hanna nýtt útlit frá grunni og datt þar inn í bóka- og tímaritageirann. Fjórum árum eftir heimkomuna kynntist Helga Guðný núverandi eiginmanni, Ingólfi Guðmundssyni, sem starfað hefur mikið við teiknimynda- og tæknibrelluheiminn og vinnur nú hjá RVX (Reykjavík Visual Effects).

„Við vorum bæði að vinna í þessum listræna heimi og vorum svolítið leitandi. Hann langaði svo mikið að fara meira út í teiknimyndageirann og þá varð úr að við fluttum til San Francisco árið 2007 þar sem hann fór í nám,“ segir hún, en stuttu síðar fékk hann vinnu við fagið.

„Á þessum tíma vann ég á arkitektastofu. Ég kynntist svo íslenskri stelpu sem var alltaf að biðja mig um að koma í einhvern leikfimitíma sem hún var í, en ég var ekki spennt. Mér fannst þetta ekkert fyrir mig, en hún mætti heim til mín einn laugardag og dró mig með í tíma. Þetta var þá fyrsti barre-tíminn minn og ég varð gjörsamlega heilluð! Ég hafði aldrei á ævinni upplifað neitt svona áður; hreyfingin sem slík var eitt það erfiðasta sem ég hafði prófað en gaf mér samt orku. Ég var ekki uppgefin eftir tímann og persónulega nálgunin var mikil. Það gerðist bara eitthvað og ég keypti mér þrjátíu daga kort þarna. Ég held að ég hafi mætt 28 sinnum!“

Að hlusta á líkamann

Hvað er barre?

„Í grunninn er barre sambland af pilates, jóga og styrktaræfingum sem við gerum bæði í miðjum sal og eins upp við ballettstöng sem við nýtum sem jafnvægisslá,“ segir Helga Guðný og útskýrir að æfingarnar hafi í upphafi verið hannaðar fyrir ballerínu sem meiddist í baki og þurfti á endurhæfingu að halda.

„Við erum alltaf að vinna í réttri stöðu líkamans, undir góðri leiðsögn. Við snertum fólk og leiðréttum í tímanum, þannig að þú fáir tilfinninguna fyrir til dæmis réttri mjaðmastöðu eða hvernig á að ná slökun í öxlum. Við viljum ná fram slöku ástandi í líkamanum til að geta unnið djúpt inn í vöðva,“ segir Helga Guðný, en unnið er með lítil og létt lóð og hver og einn vinnur á sínu getustigi.

„Við skiptum tímanum upp í nokkrar æfingar en þær flæða saman þannig að fólk heldur brennslustiginu gangandi og á sama tíma lærist að færa sig á milli æfinga á góðan hátt. Þetta snýst um að hlusta á líkamann,“ segir Helga Guðný og nefnir að öndun skipti miklu máli í barre.

„Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert og það er mjög auðmýkjandi að koma í sinn fyrsta barre-tíma,“ segir Helga Guðný og brosir.

„Ég náði þarna einhverri innri tengingu sem varð til þess að ég heillaðist svona rosalega.“

Hvar kemst ég í barre?

Á þessum tíma, þegar Helga Guðný varð fyrir hugljómun í barre-tímunum, var annar sonur fæddur.

„Við áttum ekki bót fyrir boruna á okkur; maðurinn minn í skóla og ég að reyna að vinna fyrir leigunni. En ég fann það bara að barre var eitthvað sem ég vildi hafa í lífinu. Ég settist niður á fundi með manninum mínum til að ræða hvort ég gæti fundið tíma fyrir barre í lífi mínu og hvort við hefðum efni á að ég gerðist meðlimur í barre-stöðinni. Það var fyrsta skrefið, þó ég gæti ekki farið 28 sinnum í mánuði,“ segir Helga Guðný og brosir.

„Það varð úr og ég vaknaði eldsnemma fjórum sinnum í viku til að mæta klukkan sex á morgnana í barre til að geta verið búin nógu snemma til að geta mætt í vinnuna klukkan níu,“ segir Helga Guðný, en þegar Ingó fékk vinnu langt í burtu þurftu þau að flytja. Helga Guðný var þá ólétt að þriðja stráknum og var farin að vinna sjálfstætt sem grafískur hönnuður.

„Þegar við þurftum að flytja var það fyrsta sem ég hugsaði hvar ég kæmist í barre, en ég vissi af stúdíói í hálftíma fjarlægð og myndi láta það ganga. En mig langaði meira að verða hluti af þessu konsepti; þetta var einhver öðruvísi nálgun en í öðrum líkamsræktarstöðvum. Kennarinn tekur þarna vel á móti kúnnum og hann stendur ekki fremst og kennir heldur gengur um salinn. Það er alltaf þessi persónulega þjónusta og þú færð athygli.“

Ekki fræðilegur möguleiki!

Helga Guðný lét til skarar skríða og hafði samband við höfuðstöðvar barre, The Dailey Method, og kynnti sig.

„Ég spurði bara hvort þau vantaði grafískan hönnuð því mig langaði svo að finna leið til að verða hluti af þessu. Þá kom í ljós að þarna var stelpa að opna stúdíó ekki langt frá Petaluma þar sem við bjuggum og ég var sett í samband við hana. Við fengum okkur kaffi og ég stakk upp á að ég myndi vinna í móttökunni og hugsaði að ég gæti þá fengið að koma í fría tíma, en ég var enn að frílansa í grafíkinni. Mér fannst það mín leið inn, en þá sagðist hún vera að leita að kennurum og stakk upp á að ég myndi kenna. Ég var svaraði bara að það væri ekki fræðilegur möguleiki, en hún vildi endilega að við færum í tíma saman. Eftir það vildi hún að ég endurskoðaði þetta tilboð,“ segir Helga Guðný sem endaði á að fara í frekari þjálfun og skuldbatt sig til að vinna í stúdíóinu í sex mánuði.

„Ég sótti námskeið til að læra að vera kennari og hafði til þess hálft ár. Eftir þrjá mánuði fannst mér ég vera komin út í eitthvað sem ég réði ekki við, því þetta lítur út fyrir að vera auðvelt en er það alls ekki. Hún tók mig þá á eintal og ég lærði bara að hlutirnir eru ömurlegir þangað til þeir verða góðir,“ segir Helga Guðný og segir fullkomnunarsinnann í sér hafa bankað upp á. En hún ákvað að láta slag standa og kláraði námið og kenndi þar síðan í sex mánuði.

„Ég þróaði mig áfram og hún var ótrúlega góður mentor. Ég fylltist fljótt af öryggi þrátt fyrir öll mistökin, sem ég lærði svo af.“

Breyting varð svo á vinnu Ingólfs og fékk hann vinnu í Los Angeles. Þá var bara að pakka búslóðinni saman og þremur börnum og flytja enn á ný, en þess má geta að fjölskyldan flutti tíu sinnum á þeim þrettán árum sem þau bjuggu í Kaliforníu.

Svo skellur covid á

Í Los Angeles tók við leitin að næsta barre-stúdíói því að það varð ekkert aftur snúið hjá Helgu Guðnýju. Það fannst og fljótlega var hún farin að kenna. Áður en varði var henni boðið að kaupa hlut í stúdíóinu en arfur sem hjónunum tæmdist á þessum tíma kom sér vel.

„Við stukkum á þessa fjárfestingu sem eftir á að hyggja var kannski galin því við vissum ekkert hvað við yrðum lengi þarna. En ég vissi alltaf að þetta væri það sem ég átti að vera að gera,“ segir hún, en hún átti helming í þessu stúdíói í um þrjú ár.

„Þá var ég orðin ófrísk og var reyndar líka búin að opna búð í LA,“ segir Helga Guðný, en fjórði sonurinn kom í heiminn og ákváðu þær stöllur að selja reksturinn. Helga Guðný var þó farin að kenna aftur hálfu ári síðar og tók þá aðra barre-gráðu.

„Það var gaman að taka nýtt nám og vera að kenna og áður en ég vissi af var ég farin að stýra þessu stúdíói,“ segir hún og hlær.

„Ég bætti líka við mig jógakennaranámi en ég var þá líka farin að kenna konum að verða barre-kennarar. En svo bara skellur covid á.“

Að breiða út boðskap

Hjónin þurftu að endurskoða allt lífið því að covid setti strik í reikninginn. Þau tóku þá ákvörðun að flytja heim, en elsti drengurinn varð eftir, enda kominn í háskóla.

„Eftir heimkomuna hélt ég áfram að frílansa í grafíkinni og vann mikið í fjarvinnu. Ég ákvað að taka pásu í barre sem var eiginlega ekki komið á radarinn hér heima,“ segir hún.

Ekki gat þó Helga Guðný haldið sig lengi frá barre og endaði á að vera með námskeið hjá Hreyfingu tvisvar í viku.

„Ég fann fljótt að þetta líkamsræktarandrúmsloft hentaði mér ekki eftir að hafa lært inn á þennan „boutique-fitness“-heim þar sem er persónulegri nálgun. Ég talaði við konu frænda míns, sem hafði ýtt á mig að kynna fyrir sér barre, og sagði við hana að ef hún fyndi fyrir mig fimmtán konur skyldi ég finna sal. Og þannig varð NúnaCo. til,“ segir hún.

„Ég byrjaði með tíma þrisvar í viku en svo komu fleiri hópar og þetta óx,“ segir Helga Guðný, en stöðin hennar flutti svo ári síðar, árið 2022, í núverandi stúdíó úti á Granda.

„Ég náði strax að búa til þá stemningu sem mig langaði til að hafa. Ég þekki allar konurnar mínar með nafni og þær eru búnar að kynnast. Það er ótrúlega skemmtilegt. Ég er að búa til upplifun,“ segir Helga Guðný, en auk þess að reka NúnaCo. og kenna þar, tekur hún einnig konur í kennaranám. Helga Guðný bjó til sitt eigið nám sem er það fyrsta utan Bandaríkjanna sem hefur verið samþykkt af Barre Fitness Alliance.

„Ég kenni um níutíu prósent af öllum barre-tímum hjá NúnaCo. en er með jógatíma líka og er með dásamlegan hóp af jógakennurum,“ segir hún en í hverjum tíma eru hámark átján manns.

„Það er enn pláss til að stækka, en ég er bara með einn sal og þarf ekkert meira. Ég get enn tekið á móti fleiri konum og bætt við tímum en svo set ég þak,“ segir hún.

„Mig langar mikið til að breiða út þennan „boutique fitness“-boðskap. Í okkar tímum er ólgusjór af orku og þegar ég horfi yfir hópinn fyllist hjartað mitt af gleði.“