Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu felldi niður rannsókn á þeim anga hryðjuverkamálsins er snýr að Guðjóni Valdimarssyni, föður Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra. Þetta herma heimildir Morgunblaðsins.
Leiddu tengsl feðginanna til þess að ríkislögreglustjóri sagði sig frá rannsókn hryðjuverkamálsins.
Guðjón var, á þeim tíma sem rannsóknin var í gangi, vopnasali og seldi vopn í gegnum vefsíðuna vopnasalinn.net en hún hefur legið niðri frá því rannsókn málsins hófst.
Nafn Guðjóns kom upp í tengslum við rannsókn málsins og gerði lögregla húsleit á heimili hans í kjölfar frásagnar um að hann hefði keypt þrívíddarprentað vopn af Sindra Snæ Birgissyni, öðrum sakborninga í hryðjuverkamálinu. Guðjón neitaði staðfastlega að hafa keypt slíkt vopn og slíkar ásakanir voru aldrei sannaðar.
173 skotvopn skráð
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru 173 skotvopn skráð á nafn Guðjóns þegar húsleitin fór fram. Eins fundust á heimili hans skotvopn sem skráð voru týnd eða óskráð og fleiri en eitt vopn sem skráð voru á hann en voru ekki á staðnum þegar lögregla framkvæmdi húsleit. Gat hann í fyrstu ekki gefið skýringar á því hvers vegna misbrestur var á skráningu vopnanna.
Í fréttaskýringu Kveiks var m.a. sagt frá manni sem dæmdur var fyrir vopnalagabrot eftir að hafa verið með ólöglegan AK 15-hríðskotariffil í fórum sínum. Sagði maðurinn að hann hefði keypt vopnið af Guðjóni á 1,5 milljónir króna. » 4