Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins hefur lagt fram frumvarp í annað sinn um breytingar á heimildum óbyggðanefndar um að taka ekki landsvæði utan strandlengju meginlandsins til meðferðar.
„Þar sem óbyggðanefnd hefur tekið til meðferðar landsvæði utan strandlengju meginlandsins hafa endurskoðaðar kröfur fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins um þjóðlendur á svæðinu þegar borist nefndinni auk þess sem óbyggðanefnd hefur kallað eftir kröfum þeirra sem kunna að eiga öndverðra hagsmuna að gæta. Því legg ég til að lögin öðlist þegar gildi og kröfur vegna landsvæða utan strandlengju meginlandsins, sem lýst hafi verið fyrir gildistöku laganna, fari samkvæmt ákvæðum frumvarpsins, þ.e. að óheimilt verði að fjalla frekar um þær,“ segir í greinargerð frumvarps Sigmundar.
Búist við kröfum í febrúar
Óbyggðanefnd tók svæði 12, eyjar og sker, sem tekur til landsvæða utan strandlengju meginlandsins, til meðferðar 19. apríl 2023. Endurskoðaðar kröfur fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins um þjóðlendur á svæðinu bárust óbyggðanefnd 9. október 2024. Óbyggðanefnd kallaði eftir kröfum þeirra sem kynnu að eiga öndverðra hagsmuna að gæta og skyldi kröfum lýst skriflega fyrir 14. febrúar 2025. Málsmeðferð á hverju svæði hefst á því að óbyggðanefnd tilkynnir fjármála- og efnahagsráðherra að nefndin hafi ákveðið að taka svæðið til meðferðar og veitir honum frest til að lýsa fyrir hönd íslenska ríkisins kröfum um þjóðlendur þar.