Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Sýningarfyrirtækið Ritsýn efnir til tveggja atvinnuvegasýninga í Laugardalshöll í haust.
Annars vegar er það sýningin Sjávarútvegur/Iceland Fishing Expo 2025 sem er haldin 10. til 12. september og hins vegar Iðnaðarsýningin 2025 er stendur frá 9. til 11. október. Hefur Ritsýn pantað sýningarrými í Höllinni fyrir næstu fjögur ár enda hafa sýningarnar verið uppseldar, að sögn Ólafs M. Jóhannessonar framkvæmdastjóra.
Ólafur segir að sýningarnar hafi stækkað og eflst með árunum. Hann finni fyrir miklum og vaxandi áhuga hjá fyrirtækjum og greinilegt sé að það er mikil þörf fyrir sýnendur að hitta gamla og gjarnan nýja viðskiptavini.
Eftir því sem tjáskipti verða ópersónulegri á tímum gervigreindar þá sannist æ betur að ekkert jafnast á við bein og milliliðalaus samskipti.
Sérstaða Ritsýnar sé sú að sýnendur fá fría boðsmiða, eins marga og hentar, til að bjóða gestum. Þannig nái þeir betur til markhópsins og gestir verði jákvæðari og áhugasamari um að mæta. „Það hefur aldrei áður verið eins mikill áhugi fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum á að taka þátt í sýningum og í ár,“ segir Ólafur.
Ritsýn hefur haldið fagsýningar í 28 ár. Sjávarútvegur/Iceland Fishing Expo er núna haldin í fjórða skipti. Á sýningunni eru allar tegundir af fyrirtækjum er þjóna íslenskum sjávarútvegi. Ólafur segir að þarna hafi gjarnan verið kynntar ýmsar nýjungar sem hafa vakið mikla athygli. Sýningin spanni mjög vítt svið bæði er varðar hátæknibúnað fyrir veiðar og vinnslu og svo sé fiskeldið að koma sterkt til leiks.
Iðnsýningin er haldin í annað skiptið í samvinnu við Samtök iðnaðarins. Þar verður sem fyrr lögð áhersla á mannvirkjagerð, orku, innviði, vistvænar lausnir, hönnun og hugbúnað.