Fyrirliði Kári Arnarsson skoraði þrennu fyrir SR á Akureyri.
Fyrirliði Kári Arnarsson skoraði þrennu fyrir SR á Akureyri. — Ljósmynd/Þórir Tryggvason
SR gerði góða ferð á Akureyri og lagði þar SA í bæði karla- og kvennaflokki í lokaumferðum Íslandsmótsins í íshokkí á laugardaginn. Karlalið SR sigraði með gullmarki, 7:6, í framlengingu en liðið var undir 2:5 í öðrum leikhluta

SR gerði góða ferð á Akureyri og lagði þar SA í bæði karla- og kvennaflokki í lokaumferðum Íslandsmótsins í íshokkí á laugardaginn.

Karlalið SR sigraði með gullmarki, 7:6, í framlengingu en liðið var undir 2:5 í öðrum leikhluta. Kári Arnarsson, fyrirliði SR, skoraði þrennu í leiknum og gaf tvær stoðsendingar að auki.

SA tók við deildarmeistarabikarnum að leik loknum en liðið endaði með 38 stig, sjö stigum meira en SR sem hafnaði í öðru sætinu. Fjölnir hafnaði í þriðja sæti með 28 stig og SFH fékk 11 stig.

SA og SR mætast svo í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn sem hefst á Akureyri laugardaginn 29. mars með fyrsta leik. Leikur tvö er í Skautahöllinni í Laugardal þriðjudaginn 1. apríl en vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.

Kvennalið SR sigraði svo SA 3:2 í seinni leik dagsins fyrir norðan. Friðrika Magnúsdóttir, Saga Sigurðardóttir og Kristína Davíðsdóttir skoruðu mörk SR í leiknum en Aðalheiður Ragnarsdóttir og Silvía Rán Björgvinsdóttir skoruðu mörk Akureyringa. SR hefur verið á mikilli siglingu seinni hluta tímabilsins en náði þó ekki hinum liðunum tveimur í deildinni.

Fjölnir varð deildarmeistari kvenna með 34 stig og SA hafnaði í öðru sætinu með 23 stig. SR hafnaði í þriðja og neðsta sætinu með 15 stig. Fjölnir og og SA mætast í úrslitum Íslandsmótsins sem hefjast í Egilshöll núna á þriðjudaginn. Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.