Samstaða Stjórn SSV, ásamt 11 bæjar- og sveitarstjórum, fundaði með forsætis- og samgönguráðherra vegna ástandsins í vegamálum á Vesturlandi.
Samstaða Stjórn SSV, ásamt 11 bæjar- og sveitarstjórum, fundaði með forsætis- og samgönguráðherra vegna ástandsins í vegamálum á Vesturlandi. — Ljósmynd/Aðsend
Stjórn samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, SSV, ásamt 11 bæjar- og sveitarstjórum fundaði með forsætis- og samgönguráðherra í stjórnarráðinu í gær vegna ástandsins í vegamálum á vesturhluta landsins

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Stjórn samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, SSV, ásamt 11 bæjar- og sveitarstjórum fundaði með forsætis- og samgönguráðherra í stjórnarráðinu í gær vegna ástandsins í vegamálum á vesturhluta landsins.

Páll Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV og Guðveig Lind Eyglóardóttir, formaður stjórnar SSV, sögðust í samtali við Morgunblaðið eftir fundinn vera bjartsýn á að gripið yrði til aðgerða.

Fundurinn var í framhaldi af bréfi sem sveitar- og bæjarstjórar á Vesturlandi sendu sameiginlega oddvitum ríkisstjórnarinnar til að ávarpa það neyðarástand sem er í vegamálum á Vesturlandi.

Öryggis- og atvinnumál

Guðveig segist skilja að allir séu orðnir meðvitaðir um að grípa þurfi til ráðstafana vegna ástandsins.

„Þetta snýst ekki bara um öryggi vegfarenda heldur snýr þetta líka að atvinnulífinu á svæðinu um flutning verðmæta í gjaldeyrisöflun fyrir land og þjóð.“

Spurð hvort einhver tala hafi verið nefnd um að grípa til nauðsynlegra aðgerða segir Páll að engin tala hafi verið nefnd en Vegagerðin sé búin að meta hvað þurfi að gera.

50 ár aftur í tímann

Þau segjast vilja sjá áætlun um vegaúrbætur á Vesturlandi.

„Það verður að segjast eins og er að við vorum varla á blaði á þeirri samgönguáætlun sem lá fyrir síðast. Við erum að tala um veginn frá Borgarnesi vestur Snæfellsnes og í Dali. Umferðin hefur aukist gríðarlega bæði vegna aukinnar ferðaþjónustu og á sama tíma hafa þungaflutningar vegna fiskeldis aukist mikið. Við erum að knýja á um það að farið verði í aðrar aðgerðir en gripið var til í fyrra þar sem farið var í að fletta malbikinu af á hættulegustu köflunum, búa til malarvegi og færa okkur 50 ár aftur í tímann.“

Höf.: Óskar Bergsson