Þorsteinn Skúli Sveinsson
Á næstu dögum stendur félagsfólk VR frammi fyrir mikilvægu vali. Kosningar hófust 6. mars sl. og þá gefst tækifæri til að velja sér formann sem stendur með félagsfólki og berst fyrir hagsmunum þess af krafti. Ég býð mig fram til þess að leiða VR inn í öflugra og samheldnara tímabil og ég veit hvað þarf að gera til að svo megi verða.
Samstaða er lykillinn að sterkara VR
Sem formaður mun ég tryggja að ný stjórn VR standi saman, óháð því hverjir verða kjörnir inn. Við þurfum að þétta raðirnar og vinna saman að sameiginlegu markmiði: að bæta kjör félagsfólks. Ég tala skýrt og á mannamáli, en ekki í háfleygum frösum. Félagsfólk á að finna fyrir því að rödd þess skiptir máli.
Spurningin einföld: Viljið þið sterkara VR sem berst fyrir ykkur, eða VR sem heldur áfram á sömu braut?
Baráttumál sem skipta máli
Ég er tilbúinn að taka slaginn fyrir ykkur í þeim málum sem skipta raunverulega máli.
Fjölskylduvænn vinnumarkaður
Enginn á að þurfa að velja á milli atvinnu og fjölskyldu. Óvissa um dagvistunarúrræði eftir fæðingarorlof veldur óþarfa álagi. Aðrir frambjóðendur tala um að brúa bilið, en engar raunverulegar lausnir hafa verið lagðar fram. Ég mun beita mér fyrir því að finna og framkvæma lausnir.
Varasjóðurinn á að þjóna félagsfólki – ekki safna fé
Varasjóðurinn á að vera skjól fyrir félagsfólk þegar þess þarf, ekki sparisjóður VR. Ég er ósammála því að þeir sem eiga meira fái meira. Ég mun beita mér fyrir réttlátari úthlutunarreglum sem tryggja að sjóðurinn nýtist öllum sem á honum þurfa að halda.
Félagsfólk hefur sjálft lýst yfir óánægju
„Ég hef búið hér á landi í sjö ár, verið á sama vinnustaðnum öll þau ár og ekki hafa laun mín lækkað, en ég fæ alltaf það sama úr varasjóðnum – í kringum 20.000 kr. Hvar er jafnréttið?“
„Það tekur því ekki að taka úr sjóðnum því þetta eru svo lágar upphæðir.“
Og ég vil ekki þurfa að heyra það aftur að félagsfólk sé hætt í VR því það fær m.a. ekki fæðingarstyrk, en það er raunin.
Ég mun tryggja að þetta breytist.
Jöfnun réttinda á vinnumarkaði
VR á að vera leiðandi í kjarabaráttu en ekki að fylgja í spor annarra. Við þurfum að tryggja að félagsfólk VR njóti sömu réttinda og aðrir, bæði í veikindarétti og þegar kemur að launahækkunum.
Nýlega var samið um 24% launahækkun fyrir kennara sem er mjög góður árangur og samgleðst ég þeim. Tel ég þau eiga það fyllilega skilið enda er þetta fólkið sem er að mennta börnin okkar en ekki má gleyma félagsfólki VR sem er ekki síður mikilvægt, sem situr eftir með mun minni hækkun. Af hverju hefur ekkert heyrst frá VR? Þetta eru spurningar sem ég vil fá svör við og bregðast við með skýrum aðgerðum.
Opnari og skýrari samskipti
Félagsfólk VR á ekki að þurfa að bíða eftir kosningum til að fá að hitta formann sinn. Ég vil tryggja regluleg samskipti við félagsfólk, samningsaðila og stjórnvöld til að bæta kjör og leysa brýn mál hratt og örugglega. VR á að tala skýrt fyrir réttindum félagsfólks og tryggja að enginn sé skilinn eftir.
Ég er tilbúinn – en þið?
Ég hef unnið innan VR í 14 ár. Ég þekki félagið inn og út og veit hvar breytinga er þörf. Ég læt engan stöðva mig í að berjast fyrir félagsfólk.
Félagsfólk VR á betra skilið. Við þurfum VR sem stendur fast fyrir félagsfólk, VR sem lætur ekki aðrar stéttir taka forskot á réttindi og launakjör og VR sem forgangsraðar hagsmunum félagsfólks, ekki pólitískum hagsmunum.
Ef þið viljið breytingar, ef þið viljið VR sem stendur með ykkur er valið skýrt.
Kjósið breytingar. Kjósið rétt. Kjósið mig.
Höfundur er frambjóðandi til formanns VR.