Norski knattspyrnumaðurinn Marius Lundemo hefur skrifað undir tveggja ára samning við Val. Lundemo, sem er varnarsinnaður miðjumaður, lék síðast með Lilleström en hann hefur einnig spilað fyrir APOEL Nicosia, Bærum og Rosenborg
Norski knattspyrnumaðurinn Marius Lundemo hefur skrifað undir tveggja ára samning við Val. Lundemo, sem er varnarsinnaður miðjumaður, lék síðast með Lilleström en hann hefur einnig spilað fyrir APOEL Nicosia, Bærum og Rosenborg. Hann var í fjögur ár hjá Rosenborg, frá 2017 til 2020, og varð tvisvar Noregsmeistari og einu sinni bikarmeistari. Lundemo, sem er þrítugur, er nú þegar mættur til æfinga með Val á Marbella á Spáni.