Newcastle vann mikilvægan útisigur á West Ham, 1:0, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í Lundúnum í gær. Eftir leikinn er Newcastle með 47 stig í sjötta sæti deildarinnar en West Ham er í 16. sæti með 33
Newcastle vann mikilvægan útisigur á West Ham, 1:0, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í Lundúnum í gær. Eftir leikinn er Newcastle með 47 stig í sjötta sæti deildarinnar en West Ham er í 16. sæti með 33. Newcastle er með jafnmörg stig og Englandsmeistarar Manchester City og tveimur frá Chelsea í fjórða sætinu og er spennan því farin að magnast. Sigurmarkið skoraði Bruno Guimaraes á 63. mínútu leiksins eftir sendingu frá Harvey Barnes.