Hermann Nökkvi Gunnarsson
hng@mbl.is
Stefnt er að því í haust að senda landsmönnum bæklinga og upplýsingar um neyðarbirgðir og annað slíkt til undirbúnings ef Ísland skyldi verða fyrir árás. Ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur heldur séu stjórnvöld aðeins að vinna vinnuna sína.
Þetta segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í samtali við Morgunblaðið.
Við höfum séð einhver Norðurlönd hvetja landsmenn til að koma sér upp nokkurra daga birgðum. Er þetta eitthvað sem kemur til greina, að íslensk stjórnvöld hvetji íslenska borgara til að gera það?
„Þetta er eitt af því sem er undir, þetta er eitt af því sem þarf að skoða og draga fram. Við höfðum hugsað okkur í haust að geta sent bæði bækling og upplýsingar til borgara hér á Íslandi. Allt er að breyttu breytanda. Við erum með þessa bæklinga frá okkar vinaþjóðum á Norðurlöndunum en síðan eru aðstæður hér á Íslandi með öðrum hætti og við þurfum að uppfæra þá þann bækling sem kemur frá okkur í samræmi við íslenskar þarfir,“ segir Þorgerður.
Þorgerður kynnti ríkisstjórninni í gær tillögu að mótun stefnu í öryggis- og varnarmálum Íslands en stefnt er að því að leggja fram drög að stefnunni fyrir lok vorþings. Spurð hvort bæklingurinn myndi tengjast vörnum eða náttúruhamförum segir hún að verið sé að horfa á varnir vegna mannlegra ákvarðana.
„Við erum að vinna vinnuna okkar og það er ekki ástæða til þess að vera hrædd en bara að vera á varðbergi,“ segir Þorgerður.