Grænmeti Næring barnshafandi kvenna sem og annarra er mikilvæg.
Grænmeti Næring barnshafandi kvenna sem og annarra er mikilvæg. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ný rannsókn sýnir að mataræði sem einkennist af neyslu mikillar fitu, sykurs og unnins matar á meðgöngu getur aukið hættu á taugaþroskaröskunum eins og ADHD og einhverfu hjá börnum. Greint var frá niðurstöðum rannsóknarinnar í vísindatímaritinu Nature Metabolism á dögunum

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Ný rannsókn sýnir að mataræði sem einkennist af neyslu mikillar fitu, sykurs og unnins matar á meðgöngu getur aukið hættu á taugaþroskaröskunum eins og ADHD og einhverfu hjá börnum. Greint var frá niðurstöðum rannsóknarinnar í vísindatímaritinu Nature Metabolism á dögunum.

Rannsóknin var unnin undir forystu vísindafólks við Kaupmannahafnarháskóla en meðal þátttakenda í henni var Þórhallur Ingi Halldórsson, prófessor við matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.

Rannsóknin byggðist á greiningu gagna úr fjórum dönskum og bandarískum gagnabönkum sem hafa að geyma m.a. upplýsingar um neyslumynstur yfir 60 þúsund kvenna á meðgöngu og ADHD-greiningar í hópi barna þeirra.

Jafnframt rannsakaði hópurinn blóðsýni úr bæði mæðrum og börnum. Margt var undir og leitast við að mæla styrk tiltekinna efna í líkamanum, svo sjá mætti betur mataræði og taugaþroska.

Í rannsókninni fundust skýr tengsl á milli vestræns mataræðis hjá mæðrunum og ADHD og einhverfu hjá börnum þeirra. Vestrænt mataræði einkennist af mikilli neyslu á feitum, sykruðum og unnum mat en lítilli fisk-, grænmetis- og ávaxtaneyslu.

Vísindamennirnir benda á að jafnvel tiltölulega lítil breyting á mataræði móður í átt að því vestræna auki líkur á að barn greinist með ADHD um 66% og um 122% sé litið til einhverfu.

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson