Tómas Hrafn Sveinsson
Tómas Hrafn Sveinsson
Ein umsókn um embætti varadómanda við Endurupptökudóm barst dómsmálaráðuneytinu. Tómas Hrafn Sveinsson, formaður umdæmisráðs Barnaverndar Reykjavíkur, sótti um. Hefur umsókn hans verið send dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar

Ein umsókn um embætti varadómanda við Endurupptökudóm barst dómsmálaráðuneytinu. Tómas Hrafn Sveinsson, formaður umdæmisráðs Barnaverndar Reykjavíkur, sótti um.

Hefur umsókn hans verið send dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar. Skipað verður í embættið eftir að dómnefnd lýkur störfum. Dómsmálaráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar hinn 28. febrúar og rann umsóknarfrestur út 17. mars.