Handknattleiksþjálfarinn Sigurður Bragason, þjálfari kvennaliðs ÍBV, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann vegna framkomu sinnar þegar liðið mætti Selfossi í úrvalsdeildinni, þann 22. mars. Bannið fær Sigurður fyrir mjög ódrengilega hegðun í leiknum
Handknattleiksþjálfarinn Sigurður Bragason, þjálfari kvennaliðs ÍBV, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann vegna framkomu sinnar þegar liðið mætti Selfossi í úrvalsdeildinni, þann 22. mars. Bannið fær Sigurður fyrir mjög ódrengilega hegðun í leiknum. Sigurður verður því fjarverandi þegar ÍBV mætir Fram á útivelli í kvöld. Geir Guðmundsson leikmaður Hauka og Jakob Ingi Stefánsson hjá Gróttu voru einnig úrskurðaðir í eins leiks bann.