— Morgunblaðið/Eyþór
Flaggað er nú á Stjórnarráðinu við Lækjargötu alla daga ársins. Að sögn Sighvats Arnmundssonar upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins óskaði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra eftir því í byrjun mars að þetta yrði gert

Flaggað er nú á Stjórnarráðinu við Lækjargötu alla daga ársins.

Að sögn Sighvats Arnmundssonar upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins óskaði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra eftir því í byrjun mars að þetta yrði gert. Til þessa hefur verið flaggað á húsinu á fánadögum og við sérstök tilefni.

Þess má geta að fyrir Alþingi liggur frumvarp frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur og fleiri þingmönnum Sjálfstæðisflokks um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið þess efnis að tjúgufáninn skuli dreginn á stöng alla daga ársins á Alþingishúsinu og Stjórnarráðshúsinu kl. 8 að morgni og vera við hún til kl. 21 að kvöldi. Þessa fána skuli lýsa upp í skammdeginu.

Svipað frumvarp hefur verið lagt fram nokkrum sinnum áður og þá var Birgir Þórarinsson fyrsti flutningsmaður. Þar var lagt til að flaggað yrði daglega við fleiri opinberar byggingar. gummi@mbl.is