Grindavík Það var líf á höfninni í gær þrátt fyrir eldgos daginn á undan.
Grindavík Það var líf á höfninni í gær þrátt fyrir eldgos daginn á undan. — Morgunblaðið/Eggert
Þrátt fyrir jarðhræringar á Reykjanesskaganum undanfarna daga var líf í höfninni í Grindavík í gær. Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins voru á vettvangi þegar Sighvatur GK, sem útgerðin Vísir hf

Þrátt fyrir jarðhræringar á Reykjanesskaganum undanfarna daga var líf í höfninni í Grindavík í gær.

Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins voru á vettvangi þegar Sighvatur GK, sem útgerðin Vísir hf. gerir út, landaði í Grindavíkurhöfn en hann kom í land með ríflega 70 tonn af þorski, ýsu, löngu og steinbít. Pétur Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vísis segir í samtali við Morgunblaðið að starfsemi Vísis hafi legið niðri á mánudaginn þegar gaus en í gær hafi starfsemi hafist á ný.

„Við fórum inn með helming af mannskap og tókum hálfan dag. Svo reiknum við bara með fullri keyrslu vonandi næstu mánuði eins og við erum búin að gera síðan 1. september,“ segir Pétur.

Fyrirtækið er með mikla starfsemi í Grindavík og er t.a.m. með saltfiskvinnslu og frystihús í bænum.

„Það lönduðu tveir um helgina á laugardeginum úr Vestmannaeyjum þannig að við vorum með óvenjumikið af fiski í húsunum núna þegar það gaus. Svo landaði Páll [Jónsson GK] náttúrulega á sunnudeginum,“ segir Pétur. hng@mbl.is