Vikivaki Söluturn við Barónsstíg.
Vikivaki Söluturn við Barónsstíg. — Morgunblaðið/sisi
Söluturnum hefur farið fækkandi í Reykjavík á undanförnum árum. Einn af þeim sem enn starfa er Vikivaki á horni Barónsstígs og Grettisgötu. Er hann til húsa á jarðhæð Barónsstígs 27. Á fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur fyrir skömmu var tekin til…

Söluturnum hefur farið fækkandi í Reykjavík á undanförnum árum.

Einn af þeim sem enn starfa er Vikivaki á horni Barónsstígs og Grettisgötu. Er hann til húsa á jarðhæð Barónsstígs 27.

Á fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur fyrir skömmu var tekin til afgreiðslu fyrirspurn um hvort breyta mætti notkun hæðarinnar úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði.

Neikvætt var tekið í erindið þar sem breytingin samræmdist ekki aðalskipulagi.

Fram kemur hjá verkefnastjóra skipulagsfulltrúa að samkvæmt aðalskipulagi sem í gildi er tilheyri byggingin Barónsstígur 27 borgarhluta 2, miðborg. Húsið sé við aðalgötu og á hliðarverslunarsvæði. Því gildi um húsið ákvæði um virkar götuhliðar.

Í aðalskipulagi segir m.a. um virkar götuhliðar: „Ekki er heimilt að breyta núverandi atvinnu- og þjónustuhúsnæði á jarðhæðum í íbúðir.“ sisi@mbl.is