Birta Hannesdóttir
birta@mbl.is
„Ég veit ekki nákvæmlega hvað þetta þýðir en þetta leggst þannig í mig að eitthvað sé að breytast þarna og við getum þess vegna búist við einhverjum óvæntum atburðum á næstunni út af þessu. Þetta er öðruvísi mynstur sem við erum að horfa á og öðruvísi atburðir.“
Þetta segir Þorvaldur Þórðarson prófessor í eldfjallafræði í samtali við Morgunblaðið.
Töluverð skjálftavirkni hefur verið á Reykjanestá og norðaustur af Sundhnúkagígaröðinni frá því síðdegis í gær eftir að gosinu við Grindavík lauk. Segir hann að atburðir síðustu daga bendi að einhverju leyti til þess að við séum að sjá endalokin á atburðunum á Sundhnúkahrinunni og eldvirknin muni færa sig eitthvað annað.
„Það kæmi mér ekki á óvart ef þetta sem við erum að sjá núna væru endalokin á atburðunum á Sundhnúkahrinunni hvað eldvirkni varðar og að eldvirknin færði sig til. Jafnvel út á Reykjanes eða austur í Krýsuvík.“
Hins vegar telur Þorvaldur ólíklegt að skjálftavirknin norðaustur af Sundhnúkagígaröðinni bendi til þess að kvikugangurinn sé að færast norðar. Telur hann líklegra að það sé að verða spennulosun á plötuskilum sem ýti undir skjálftana.
„En við getum ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að það hefur kvika verið að koma inn í skorpuna og hún þarf að búa til pláss fyrir sig. Þegar spennan er meiri en þolmörk skorpunnar þá brotnar hún og þú býrð til skjálfta og getur fengið svona skjálftahrinu,“ segir Þorvaldur.