Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Alls höfðu borist 65 umsagnir um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar undir kvöld í gær þegar Morgunblaðið fór í prentun. Hugmyndir ríkisstjórnarinnar um stórfellda hækkun veiðigjalds hafa mætt mikilli gagnrýni en töluverður fjöldi umsagna felur í sér stuðning við áform Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
„Sanngjörn og hugrökk nálgun!“ segir Finnur Sveinbjörnsson án þess að hafa fleiri orð um málið. Jafn stuttorður er Erlingur Sigvaldason sem segir: „Mikið framfaraskref!“
„Ég fagna þessu frumvarpi ráðherra og styð það. Ef útgerðarfyrirtæki eru ósátt geta þau alltaf skilað inn kvótanum að fiskveiðiauðlindinni sem þjóðin á. Ég hvet þessa ríkisstjórn og þingmenn hennar til að fylkja sér á bak við hæstvirtan ráðherra Hönnu Katrínu Friðriksson og fylgja þessu frumvarpi eftir, með festu og án hiks, til samþykktar svo það verði að lögum,“ skrifar Steingrímur Dúi Másson.
Hellnasker – hugveita í sjálfbærni, kveðst „styðja með öllu fyrirhugaðar breytingar á lögum um afnotagjald af auðlindinni eða svokallað veiðigjald. Breytingarnar eru ekki rothögg fyrir sjávarútveginn, heldur leiðrétting á ósanngjörnu kerfi þar sem þjóðin – eigandi fiskimiðanna – hefur aðeins fengið örlítið brot af arði sínum. Nú stendur til að tryggja að auðlindaarðurinn nýtist samfélaginu – til rannsókna, innviða, sjálfbærni og réttlætis.“
Vill fisk á markað
Kristján Berg, betur þekktur sem Fiskikóngurinn, skilaði inn umsögn þar sem hann segir það „ólíðandi að vera fiskverkandi og vinna við það að selja og markaðssetja íslenskan fisk, en á sama tíma geta ekki með nokkru móti haft neitt aðgengi að íslensku hráefni. Íslenskur fiskur er lokaður inni í kerfi nokkurra aðila sem hafa keypt upp meiri hluta kvótans og þeir halda einnig á stærstu og öflugustu fiskvinnslum landsins.“
Hann lýsir engri afstöðu til veiðigjalda en kallar eftir því að allur fiskur verði boðinn upp á fiskmörkuðum eða að minnsta kosti 10-30 prósent alls afla. „Það verður að setja leikreglur og þessir aðilar verða að vera skyldugir til þess að landa einhverjum hluta inn á fiskmarkaðina. […] Ég treysti því að þið takið þetta föstum tökum.“