Snæfríður Sól Jórunnardóttir, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Símon Elías Statkevicius verða á meðal keppenda á sterku alþjóðlegu sundmóti sem hefst í Bergen í Noregi í dag og lýkur á sunnudag. Þau eru síðan á leið á Íslandsmótið sem fer fram í Laugardalslaug um aðra helgi.
Úrslitaeinvígi SA og SR um Íslandsmeistaratitil karla í íshokkí hefst á Akureyri á morgun. Það komst á hreint í gær þegar áfrýjunardómstóll ÍSÍ úrskurðaði að Fjölnir hefði ekki átt kærurétt í leik SA og SR, sem dómstóll ÍSÍ hafði áður úrskurðað SR tapaðan, 10:0. Úrslit leiksins standa því, SR endar í öðru sæti Íslandsmótsins og mætir því SA í úrslitunum þar sem vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari.
Knattspyrnukonan Hildur Þóra Hákonardóttir hefur samið við FH um að leika með liðinu á komandi keppnistímabili. Hildur, sem er 23 ára varnarmaður, á að baki 48 leiki með Breiðabliki í efstu deild en hún hefur stundað nám við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum undanfarin ár og lék ekkert á síðasta tímabili.
Ahmad Faqa, sænsk-sýrlenski knattspyrnumaðurinn sem lék með HK 2023, er kominn til FH frá AIK í Svíþjóð en hann verður í láni fram á mitt sumar. Faqa, sem er 22 ára varnarmaður, lék 25 leiki með HK í Bestu deildinni og skoraði tvö mörk og var einn af fjórum sem komu til greina í kjöri á efnilegasta leikmanni deildarinnar.
Kristófer Breki Björgvinsson, 18 ára leikmaður Ármanns og yngri landsliðanna í körfuknattleik, verður frá keppni fram á næsta ár eftir að hafa slitið krossband í leik Ármanns og Selfoss í umspili um sæti í úrvalsdeildinni fyrr í þessari viku. Kristófer er í láni hjá Reykjavíkurliðinu frá Haukum og hafði skorað 24 stig í fyrri hálfleik í viðureign liðanna þegar hann meiddist.