Hljómsveitin Árstíðir hefur gefið út söngplötuna Vetrarsól og fylgir henni eftir með útgáfutónleikum víðs vegar um landið. Platan inniheldur 12 lög á íslensku sem eiga það flest sameiginlegt að vera samin eða útsett af íslenskum tónskáldum fyrir sönghópa og kóra

Hljómsveitin Árstíðir hefur gefið út söngplötuna Vetrarsól og fylgir henni eftir með útgáfutónleikum víðs vegar um landið. Platan inniheldur 12 lög á íslensku sem eiga það flest sameiginlegt að vera samin eða útsett af íslenskum tónskáldum fyrir sönghópa og kóra. „Í tilefni útgáfunnar mun hljómsveitin, í samstarfi við Nótnaveitu Tónlistarmiðstöðvar, gefa út nótur að öllum lögunum á plötunni á heimasíðu Tónlistarmiðstöðvar,“ segir í tilkynningu. Tónleikarnir verða í Akureyrarkirkju í kvöld, Menningarhúsinu Bergi annað kvöld, Blönduóskirkju 6. apríl, Vinaminni við Akraneskirkju 10. apríl og Árbæjarkirkju 13. apríl. Miðar fást á tix.is.