— Morgunblaðið/Eyþór
Ólafur Helgi Marteinsson, fráfarandi formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, sagði í opnunarerindi sínu á ársfundi samtakanna í Silfurbergi í Hörpu í gær að það væri með ólíkindum að grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar þyrfti að sæta því að …

Þóroddur Bjarnason

tobj@mbl.is

Ólafur Helgi Marteinsson, fráfarandi formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, sagði í opnunarerindi sínu á ársfundi samtakanna í Silfurbergi í Hörpu í gær að það væri með ólíkindum að grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar þyrfti að sæta því að hver einasta ríkisstjórn sem tæki við völdum teldi bráðnauðsynlegt að setja mark sitt á starfsumhverfi greinarinnar.

Vísaði Ólafur þar í frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á veiðigjöldum.

Hann rifjaði upp að í gegnum árin hefði sjávarútvegur ítrekað komið landinu til bjargar og staðist ágjöf, þar á meðal í bankahruninu 2008 og covid-19-faraldrinum. Hann sagði að hægt væri að stóla á sjávarútveginn.

Ævintýralegar breytingar

Þá sagði hann að breytingar í greininni hefðu verið ævintýralegar í gegnum tíðina og sjávarútvegur væri hvergi jafn þróaður og arðsamur og á Íslandi. Tækifærin væru endalaus.

„Íslendingar eru fremstir í nýtingu á því sem upp úr sjó er dregið,“ sagði Ólafur.

Ólafur vísaði í orð Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra frá árinu 2011 þegar hún var hagfræðingur í Arion banka og sagði að þá hefði hún sagt að öll óvissa væri til þess fallin að draga úr frekari fjárfestingu og hefði áhrif á fyrirtæki og lánveitingar til þeirra.

„Hún virðist ekki ætla að taka sjálfa sig mjög alvarlega því ráðherra í hennar ríkisstjórn hefur boðað umfangsmiklar breytingar á starfsumhverfinu og ef þær ganga eftir munu þær hafa áhrif á vilja og getu fyrirtækjanna til fjárfestingar og nýsköpunar.“

Ólafur sagði að stundum væri hyggilegra að reikna dæmið til enda.

Bættist á óvissu

Hann sagði jafnframt að veiðigjaldafrumvarpið bættist við óvissu sem nú ríkir á alþjóðamarkaði vegna tolla stjórnvalda í Bandaríkjunum. Enn fremur bættist við árleg óvissa vegna loðnuveiða.

Ólafur kallaði eftir því að stjórnvöld spyrðu sig hvar þau sæju greinina eftir þrjátíu ár. „Ég er að lýsa eftir framtíðarsýn, ekki fjögurra ára sýn manna sem koma og fara.“

Sagði hann að ef forsætisráðherra væri að reka fyrirtæki yrði það hennar fyrsta verk að setja fram stefnu og sýn til að hámarka árangur.

Kvaðst hann vona að stjórnvöld bæru gæfu til að horfa fram í tímann, og það sama gilti fyrir fiskeldi í landinu.

Gagnrýndi Ólafur stjórnsýslu í kringum fiskeldið sem hann segir að sé fjarri því að vera fullnægjandi. Á meðan bíði fjárfestingar eftir að geta skapað verðmæti.

Úrvinnsla hafin

„Það gengur ekki að slá úr og í eftir því hvernig vindar blása í pólitíkinni.“

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sagði í sínu erindi að úrvinnsla væri hafin í ráðuneytinu á ábendingum sem hefðu borist í samráðsgátt vegna veiðigjaldafrumvarpsins. Þar yrði tekið tillit til málefnalegra sjónarmiða.

Um tollasetningu Bandaríkjastjórnar, sem skekið hefur alþjóðamarkaði í vikunni, sagði Hanna að allir töpuðu á tollastríðum. Þá sagði hún það dapurt að Bandaríkin tækju þessa stefnu varðandi alþjóðaviðskipti.

„Fyrir þjóð eins og okkur, sem reiðum okkur á frjáls viðskipti, eru þetta gríðarleg vonbrigði.“

Þá sagði hún að samkeppnisþjóðir Íslands í sjávarútvegi hefðu fengið hærri tolla og ljóst væri að þetta hefði getað farið á verri veg.

Sagði ráðherrann að samtöl væru hafin við hagsmunaaðila í Bandaríkjum um að setja þrýsting á stjórnvöld í Washington um að skoða lausnir varðandi sjávarútveg m.a.

Sameiginlegt verkefni

Hanna sagði það sameiginlegt verkefni stjórnvalda og sjávarútvegsins að stíga enn frekari skref í að efla áhuga á íslenskum sjávarafurðum og hollustu sem í þeim fælist.

Þá sagði ráðherrann að mikil tækifæri lægju í lagareldinu og auka þyrfti rannsóknir og bæta skilvirkt eftirlit með starfsgreininni.

Sagðist Hanna ætla að leggja fram nýtt frumvarp um lagareldi á haustmánuðum sem myndi byggjast á þeirri vinnu sem farið hefði fram nú þegar.

Hún vék einnig að loðnuveiðum og sagði að það væru mikil vonbrigði að engar slíkar veiðar yrðu enn eitt árið á yfirstandandi vetrarvertíð.

Þá sagðist hún að lokum hafa óskað eftir endurskoðun á fyrirkomulagi alls rannsóknarstarfs í loðnuveiðum í samstarfi við þjóðir sem Ísland deilir loðnunni með.

Sjávarútvegur

Endalaus tækifæri

Óvissa dregur úr fjárfestingu

Undirbúningur að viðtölum um tolla hafinn við stjórnvöld í Washington

Úrvinnsla hafin í ráðuneytinu á ábendingum sem bárust í samráðsgátt vegna veiðigjaldafrumvarpsins

Döpur stefna Bandaríkjanna

Auknar rannsóknir og eftirlit með lagareldi

Höf.: Þóroddur Bjarnason