Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, segir ekki hjá því komist að það verði tafir á umferð þegar hluti Sæbrautarinnar verður lagður í stokk. Reiknað sé með að verkið hefjist 2027 og að því ljúki 2030.
„Framkvæmdum við stokka fylgir mikið rask. Því þarf að útbúa öflugar hjáleiðir, en jafnvel þótt það sé gert verður talsvert rask. Þess vegna er mikilvægt að stytta framkvæmdatímann eins mikið og hægt er. En þótt útbúin sé hjáleið getur ekki verið sami umferðarhraði eins og er á veginum í dag. Því munu fylgja einhverjar tafir,“ segir Davíð.
Byggt fyrir borgarlínu
Þétting byggðar í borginni tekur nú mið af áformum um borgarlínu og áherslu á strætó. Það birtist nú vel í Safamýri þar sem biðstöð Strætó er í seilingarfjarlægð frá nýjum íbúðum Bjargs. » 18