Kvennalandslið Íslands í fótbolta býr sig undir seinni heimaleikinn í þessari törn en eftir markalaust jafntefli gegn Noregi á föstudag leikur liðið gegn Sviss á Þróttarvellinum í Laugardal á morgun klukkan 16.45

Kvennalandslið Íslands í fótbolta býr sig undir seinni heimaleikinn í þessari törn en eftir markalaust jafntefli gegn Noregi á föstudag leikur liðið gegn Sviss á Þróttarvellinum í Laugardal á morgun klukkan 16.45. Liðið endurheimtir Alexöndru Jóhannsdóttur og Dagnýju Brynjarsdóttur sem voru í leikbanni gegn Noregi og þarf á sigri að halda til að styrkja stöðuna í tvísýnni baráttu í riðlinum í Þjóðadeildinni.