Kóreskur maður í Bangkok stökk yfir brotna göngubrú á 50. hæð í leit að eiginkonu og eins árs dóttur eftir öflugan jarðskjálfta. Skjálftinn, sem reið yfir 28. mars og átti upptök í Mjanmar, fannst víða og olli skemmdum í Bangkok
Kóreskur maður í Bangkok stökk yfir brotna göngubrú á 50. hæð í leit að eiginkonu og eins árs dóttur eftir öflugan jarðskjálfta. Skjálftinn, sem reið yfir 28. mars og átti upptök í Mjanmar, fannst víða og olli skemmdum í Bangkok. Maðurinn, Kwon Young-jun, var í ræktinni þegar hann áttaði sig á að brúin milli bygginga hafði brotnað – og stökk yfir gjána án þess að hika. „Ég hugsaði bara um barnið mitt,“ sagði hann við Thairath TV, vinsæla sjónvarpsstöð í Taílandi. Eiginkona hans sagði síðar: „Ég valdi ekki rangan mann.“ Nánar um málið í jákvæðum fréttum á K100.is