Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
Brýnasta verkefni sjávarútvegsins er að ná betri samskiptum við stjórnvöld, að mati Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims hf., en Guðmundur var einróma kosinn formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á ársfundi á föstudag.
„Við þurfum samtal við þau, því stjórnvöld geta ekki spilað einleik þegar kemur að því hvernig lagaumhverfi sjávarútvegsins á að vera,“ segir Guðmundur við Morgunblaðið.
Hann segir að það þurfi að vera einfaldar og skýrar reglur í greininni og að það megi ekki íþyngja sjávarútveginum með reglugerðum, það veiki greinina og íslenskt atvinnulíf almennt.
Guðmundur segir að góður gangur atvinnulífsins sé forsenda velmegunar á Íslandi. Hann segir að ekki megi skattleggja frumatvinnuvegi, eins og sjávarútveginn, of mikið því þeir skapi mörg afleidd störf í samfélaginu.
„Stjórnvöld mega ekki gleyma því að markaður íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja er erlendis og við höfum ekki efni á að veikja okkar iðnað núna, þegar svo mikil óvissa er í heiminum og nú er,“ segir Guðmundur og bendir á þær væringar sem eru í gangi í heiminum í tollamálum og fleiru.
Hann segir að Hafrannsóknastofnun verði að vinna meira með greininni og að hún geti ekki aðeins verið ríkisstofnun. „Stofnunin verður að vinna miklu meira með okkur.“ » 11