Viðtal
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Hér er komið vor, sól og blíða, grasið orðið grænt og trén hafa laufgast,“ segir Harpa Ósk Björnsdóttir sópransöngkona, þar sem hún er úti að hjóla í blíðunni í Basel í Sviss, en þar hefur hún búið frá því í ágúst í fyrra.
„Ég flutti hingað eftir að hafa verið valin til starfa hjá óperuhúsinu Theater Basel og þar hef ég sungið í fimm uppfærslum. Ég er í stöðu ungs óperusöngvara við húsið, en haldnar eru prufur fyrir öll stærstu óperuhúsin í Evrópu fyrir slíka stöðu. Aðeins þrír söngvarar komast að á hverju ári, svo þetta var rosalega stór sigur fyrir mig að komast hér að. Núna er búið að bjóða mér að starfa hér við óperuhúsið annað ár í viðbót, sem er mikil viðurkenning fyrir mig. Þetta hefur verið frábær tími og ég er spennt fyrir komandi verkefnum,“ segir Harpa sem er núna að syngja hlutverk tófu í yfirstandandi óperu sem heitir, Das schlaue Füchslein, sem á ensku útleggst The cunning little Vixen, eða Klóka tófan, á íslensku.
Syngur titilhlutverkið
„Þetta er mitt stærsta hlutverk hér í óperunni hingað til, enda er þetta titilhlutverkið, en þetta stykki byggist á teiknimyndum sem tékkneska tónskáldið Leoš Janáček hélt upp á. Enginn beinn söguþráður er í verkinu en þetta fjallar í grunninn um hringrás lífsins og heimspekilega sýn á dauðann, enda ákveður tónskáldið að láta titilpersónuna deyja þegar rúmur þriðjungur óperunnar er eftir. Leikstjórinn okkar brá á það ráð að láta uppsetninguna meðal annars fjalla um áhrif loftslagsbreytinga á mjög sniðugan hátt, við erum stödd á safni þar sem lítil stúlka les um náttúruna áður en mennirnir eyðilögðu hana og sagan gerist því inni í höfði hennar. Við fylgjumst með ævi tófu frá því hún er lítill yrðlingur, og þá er hún leikin og sungin af ungri stelpu úr stúlknakór, en svo tek ég við hlutverkinu þegar tófan verður fullvaxin. Þá kynnist klóka tófan rebba og saman eignast þau fjölda yrðlinga. Þessi ópera er ekki skrifuð fyrir börn, enda er tónlistin þó nokkuð flókin, en uppsetningin hentar fólki á öllum aldri, alveg niður í átta ára,“ segir Harpa sem hefur tekist á við ólík hlutverk og misstór í Theater Basil. Hún hefur sungið í tveimur Wagner-óperum, í Carmen og í söngleiknum Into the Woods eftir Stephen Sondheim, sem byggður er á bók James Lapine.
Hefur unnið áður með Bjarna
Harpa ætlar að skreppa heim til Íslands um páskana til að syngja á stórtónleikum í Hofi á Akureyri, en hún er í hópi þeirra einsöngvara sem þar munu syngja í Jóhannesarpassíu Bachs. Passían, sem er stundum kölluð drottning allra tónverka og er eitt ástsælasta stórvirki Bachs, verður flutt af Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór Norðurlands og einvala liði einsöngvara. Allt undir stjórn Bjarna Frímanns. Í verkinu segir af síðustu stundum píslarsögu Krists eins og hún er sögð í guðspjalli Jóhannesar, handtöku hans, yfirheyrslu, krossfestingu og dauða. Sögumaður syngur frásögnina en kórar og einsöngvarar eru í hlutverki persóna. Reglulega er atburðarásin skreytt með aríum og kóratriðum þar sem efni guðspjallsins er skoðað og tilfinningar um það tjáðar.
„Ég er svo heppin að komast á milli sýninga hér úti, til að syngja í Hofi. Ég hlakka mikið til, enda er þetta í fyrsta sinn sem ég syng einsöng með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Þetta er líka í fyrsta sinn sem ég syng Jóhannesarpassíu, en ein af mínum uppáhaldsaríum er úr passíunni og hún er með fallegri aríum tónlistarsögunnar, að mínu mati. Ég er rosalega spennt að fá að syngja þetta stykki og líka að fá að vinna með Bjarna Frímanni, en ég vann síðast með honum þegar ég söng mitt fyrsta hlutverk með Íslensku óperunni, í Brúðkaupi Fígarós. Það verður gaman fyrir okkur að fá loksins að vinna saman aftur, í höfuðborg norðursins,“ segir Harpa og bætir við að tengdafjölskylda hennar búi á Akureyri og hún ætli því að verja hluta páskafrísins þar.
„Ég lofa að koma með vorið með mér til Íslands.“
Tvær íslenskar söngkonur
Harpa segir ýmislegt fram undan í Basel, Eurovision verður haldið þar í maí og Evrópumót kvenna í fótbolta verður þar í sumar.
„Ég hef velt fyrir mér að leigja út íbúðina mína, því margir leggja leið sína hingað af þessum tilefnum. Annars er Basel mikil listaborg og við erum tvær íslenskar söngkonur sem störfum við óperuhúsið hér, ég og Álfheiður Erla Guðmundsdóttir. Hún hefur starfað hér í fjögur ár og er því reynslubolti við húsið, sem er mikill stuðningur fyrir mig, alveg dásamlegt. Við vorum saman í söngleiknum Into the Woods, sungum þar hvor sitt prinsessuhlutverkið, og við erum líka báðar núna að syngja í Hring Wagners, í þeirri miklu söngveislu. Mér finnst stórmerkilegt að tvær íslenskar söngkonur séu samtímis starfandi í sama óperuhúsi erlendis og í sömu verkefnum.“
Jóhannesarpassía verður flutt á skírdag 17. apríl kl. 16 í Hofi á Akureyri. Einsöngvarar auk Hörpu Óskar Björnsdóttur, eru Hildigunnur Einarsdóttir, Oddur Arnþór Jónsson og Þorbjörn Rúnarsson.