Karlakórar Atli Guðlaugsson stjórnar Karlakór Hreppamanna og Sprettskórnum saman fyrir tónleikaröð. Hér eru kórarnir á æfingu í kirkjunni um helgina og Sigurður Helgi við píanóið.
Karlakórar Atli Guðlaugsson stjórnar Karlakór Hreppamanna og Sprettskórnum saman fyrir tónleikaröð. Hér eru kórarnir á æfingu í kirkjunni um helgina og Sigurður Helgi við píanóið. — Morgunblaðið/Ólafur Árdal
Karlakór Hreppamanna og Sprettskórinn undirbúa söngferð til Vesturheims í sumar með því að halda þrenna tónleika sameiginlega á næstu dögum. Atli Guðlaugsson stjórnar báðum kórunum og því hæg heimatökin að sameina þá, alls um 80 söngmenn

Björn Jóhann Björnsson

bjb@mbl.is

Karlakór Hreppamanna og Sprettskórinn undirbúa söngferð til Vesturheims í sumar með því að halda þrenna tónleika sameiginlega á næstu dögum. Atli Guðlaugsson stjórnar báðum kórunum og því hæg heimatökin að sameina þá, alls um 80 söngmenn. Fyrstu tónleikarnir verða í Guðríðarkirkju í Grafarholti annað kvöld kl. 20.

„Við í Sprettskórnum vorum á heimleið frá norrænu kóramóti fyrir tveimur árum þegar ákveðið var að fara í söngferðalag á slóðir Vestur-Íslendinga í Kanada núna í ágúst en með okkur í þessari ferð voru nokkrir Hreppamenn sem fengnir voru til að styrkja Sprettskórinn,“ segir Atli en hann hefur stjórnað Sprettskórnum í 15 ár, sem að mestu er skipaður félögum í Hestamannafélaginu Spretti, og undanfarna fjóra vetur hefur hann einnig stjórnað Karlakór Hreppamanna.

„Þetta eru ekki bara hestamenn úr Spretti, við erum með sjö lækna og tvo lögfræðinga, og í ferðinni vestur verða með okkur einir fimm eða sex hjúkrunarfræðingar,“ segir Atli en hann fer með um 70 kórfélaga í byrjun ágúst næstkomandi, auk maka, alls 115 manns.

Kórarnir koma fram á Íslendingadeginum í Gimli en þá verður haldið upp á 150 ára landnám Íslendinga í Vesturheimi. Kórarnir koma fram á tónleikum á fleiri stöðum í ferðinni, m.a. Mountain og Árborg, en ferðin tekur alls tíu daga.

„Ákvörðunin um að fara vestur var tekin á góðri stund og svo reyndist ekki verra að þessi tímamót væru, 150 ár frá fyrstu för Vesturfaranna. Við bíðum spenntir eftir ferðinni, okkur skilst að búið sé að bjóða forseta Íslands að vera heiðursgestur,“ segir Atli.

Hann segir söngskrá kóranna taka nokkurt mið af ferðinni vestur, þar sem áhersla verður lögð á þjóðleg lög eftir íslenska höfunda. „Líklega er Bragi Valdimar Skúlason yngsti höfundurinn og síðan erum við með allt að hundrað ára gömul lög,“ segir Atli, en einnig verða sungin nokkur lög eftir hann.

„Þetta verður hæfileg blanda af hátíðlegum lögum og gríni og glensi inni á milli,“ segir Atli en meðal laga á listanum eru Hamraborgin, Brennið þið vitar, Hver á sér fegra föðurland, Á Sprengisandi og Orðin mín, eftir Braga Valdimar. Sömuleiðis Sólskinið í Dakóta, við texta Káins.

Á eftir tónleikunum í Guðríðarkirkju annað kvöld verða kórarnir í Hveragerðiskirkju næsta föstudagskvöld kl. 20 og í Félagsheimilinu á Flúðum miðvikudaginn 16. apríl kl. 20. Einsöngvari á tónleikunum er Bjarni, sonur Atla, og Sigurður Helgi leikur undir á píanó. Meðal einsöngslaga Bjarna er lag föður hans, Þar sem háfjöllin heilögu rísa, við texta Halldórs Laxness. Lag sem Kristinn Sigmundsson frumflutti árið 2000 með Karlakórnum Stefni, sem Atli stjórnaði þá.

Höf.: Björn Jóhann Björnsson